Betri vinnutími í dag- og vaktavinnu
9. október 2020
Í kjarasamningum 2020 var samið um styttingu vinnuvikunnar hjá dagvinnufólki og vaktavinnufólki. Um er að ræða tímamótabreytingar á vinnutíma. Undirbúningur styttingar vinnuvikunnar er hafinn í samstarfi stéttarfélaga og launagreiðanda og miðar verkefninu vel áfram.
Breyttur vinnutími tekur gildi 1. janúar 2021 fyrir dagvinnufólk og 1. maí 2021 fyrir vaktavinnufólk.
Á vefnum betrivinnutimi.is er að finna ýmsar upplýsingar um styttingu vinnuvikunnar og er smá saman verið að bæta inn fræðsluefni á vefinn. Fíh vill hvetja hjúkrunarfræðinga til að kynna sér vel þessar upplýsingar og fylgjast vel með vefnum á næstu vikum og mánuðum.
Nú hafa verið sett inn ný myndbönd á vefinn, annars vegar um betri vinnutíma í vaktavinnu og hins vegar umbótasamtal vegna betri vinnutíma í dagvinnu og vaktavinnu.
Betri vinnutími í vaktavinnu
Á betrivinnutimi.is eru einnig spurt og svarað þar sem finna má helstu spurningar og svör um um breytingar á vinnutíma í dag- og vaktavinnu.