Námskeið í betri vinnutíma í vaktavinnu
12. janúar 2021
Undirbúningur fyrir styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki er kominn á fullt skrið, en styttingin mun taka gildi þann 1. maí næstkomandi. Verkefnastjórn betri vinnutíma í vaktavinnu býður starfsfólki í vaktavinnu hjá Reykjavíkurborg, ríki, sveitarfélögum og á sjálfseignarstofnunum upp á grunnnámskeið í betri vinnutíma í vaktavinnu.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði kerfisbreytingar betri vinnutíma í vaktavinnu. Þátttakendur munu fá upplýsingar um allt fræðsluefni sem er aðgengilegt á vefnum betrivinnutimi.is og leiðbeiningar um hvernig þeir geta aflað sér frekari þekkingar upp á eigin spýtur.
Námskeiðin fara fram á teams, vara í klukkustund eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráning á námskeiðin fer fram á vef Starfsmenntar.
Athugið að grunnnámskeið í betri vinnutíma í vaktavinnu eru ætluð öllum sem vinna vaktavinnu en önnur námskeið eru aðeins ætluð þeim sem koma að innleiðingunni svo sem stjórnendum, vaktasmiðum og launafulltrúum hjá ríkisstofunum, Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum.
Hægt er að senda fyrirspurnir vegna betri vinnutíma á kjarasvid@hjukrun.is og óska eftir kynningu frá kjara- og réttindasviði Fíh.