Lesið úr launaseðli
31. maí 2021
Hvert á ég að leita ef ég tel mig ekki fá rétt laun eftir kerfisbreytingu?
- Starfsfólk á að leita til síns stjórnanda ef það telur sig ekki fá rétta útborgun launa 1. júní. Ef starfsmaður fær ekki fullnægjandi svör, að hans mati, er honum bent á að hafa samband við sitt stéttarfélag.
- Ef stjórnandi þarfnast frekari útskýringa til að geta svarað starfsmanni leitar hann til launafulltrúa eða lykilaðila á sínum vinnustað sem þekkir til betri vinnutíma í vaktavinnu
- Ef mál fær ekki úrlausn í samtali starfsmanns og stjórnanda
virkjast "Ferill einstakra mála" sem finna má að síðunni betrivinnutimi