Hjukrun.is-print-version
Sótt er um styrk í Starfsmenntunarsjóð á Mínum síðum, en til að hafa aðgengi að þeim þarf annað tveggja: Íslykil eða rafræn skilríki.

Sótt er um á Mínum síðum. Í umsókn þarf að koma fram um hvað er sótt, þ.e. nafn og lýsing á námi/námskeiði/ráðstefnu /kynnisferð og annað sem við á t.d. flugfar eða eldsneyti.

Réttur til styrks

Litið er til innborgana í sjóðinn fyrir hönd umsækjanda síðustu þrjá mánuði áður en sá viðburður á sér stað sem er til grundvallar umsóknar.

Styrkfjárhæð er 350.000 kr. á hverjum tveimur almanaksárum (24 mánuðum). Ef hluti hámarksfjárhæðar hefur verið tekinn út á árinu hefur það áhrif á styrkfjárhæð. Sjóðsfélagi með inngreiðslur hærri en 800 kr. mánaðarlega síðustu þrjá mánuði á rétt á fullum styrk, en sjóðsfélagi með inngreiðslur sem nema minna en 800 kr. mánaðarlega síðustu þrjá mánuði á rétt á hálfum styrk, þ.e.a.s. 175.000 kr. á 24 mánuðum.

Hvað er styrkt?

Verkefni þarf að jafnaði að varða fagsvið hjúkrunar sjóðfélaga til að vera styrkhæft og auka almenna starfshæfni hans á sviði hjúkrunar, stjórnunar, samskiptatækni, sjálfstyrkingar og tungumála.

Styrkhæft

  • kostnaður við nám, námskeið, ráðstefnur, málþing og faglegar kynnisferðir á heilbrigðisstofnanir sem innihalda skipulagða dagskrá í a.m.k. 6-8 klst.
  • ferðakostnaður (s.s. vegna flugfargjalda eða aksturskostnaðar)
  • hótel- og gistikostnaður

 

Ekki styrkhæft

  • Uppihald (fæðiskostnaður) og ferlir innan borga/bæja
  • Launatap
  • Bókakostnaður eða námsgögn
  • Tómstundanámskeið
  • Annað starfsnám
  • Kynnisferðir á heilbrigðisstofnanir án skipulagðrar faglegrar dagskrár í a.m.k. 6-8 klukkustundir

Nauðsynleg gögn með umsókn

Til að hægt sé að afgreiða umsóknina og greiða út styrkinn þurfa eftirtalin gögn að berast með umsókn: 

  • staðfesting á greiðslu fyrir greiðslu náms/námskeiðs/ráðstefnu/kynnisferða
  • sé um kynnisferð að ræða: dagskrá kynnisferðar
  • staðfesting á greiðslu flugmiða
  • staðfesting á greiðslu gistingar
  • staðfesting á greiðslu eldsneytis sem sýnir eldsneytisverð þann daginn

Þegar umsókn hefur borist sjóðnum birtist staðfestingartexti og umsóknin kemur fram á yfirliti umsókna á Mínum síðum. Hafi ekkert af þessu gerst, hefur umsókn ekki verið móttekin.

Greiðslur

Fullgildar umsóknir sem berast sjóðnum eru teknar fyrir á fundum sjóðsstjórnar og koma til greiðslu á 15. degi greiðslumánaðar. Greitt er út annan hvern mánuð nema um sé að ræða vafaatriði sem fara fyrir stjórn sjóðsins, þær umsóknir sem eru samþykktar eru greiddar út annan hvern mánuð, í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember.

Þegar afgreiðsla sjóðsstjórnar liggur fyrir er sjóðfélögum tilkynnt niðurstaðan í tölvupósti.


 

1. Um sjóðinn og rétt sjóðsfélaga

1.1 Um sjóðinn

Starfsemi sjóðsins byggir á starfsreglum fyrir Starfsmenntunarsjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) frá 4. janúar 2021.

 

1.2. Myndun réttinda í sjóðnum

Rétt í Starfsmenntunarsjóð Fíh eiga félagsmenn Fíh sem greitt hefur verið fyrir starfsmenntunarsjóðsframlag í samtals sex mánuði, þar af samfellda þrjá mánuði, þegar stofnað er til útgjalda vegna viðburðar sem sótt er um.

 

1.3. Fæðingarorlof

Sjóðsfélagar njóta óskertra réttinda í fæðingarorlofi samkvæmt lögum nr. 95/3000 um fæðingar- og foreldraorlof ef greitt er stéttarfélagsgjald af greiðslum fæðingarorlofssjóðs til Fíh.

 

1.4. Forgangur

Ef sjóðsþurrð verður, eða sjóðurinn stendur illa miðað við tekjur og væntanlegar skuldbindingar að mati sjóðsstjórnar, skulu þeir njóta forgangs sem aldrei hafa notið fyrirgreiðslu frá sjóðnum. Ef enn er þörf á forgangsröðun er sjóðsstjórn heimilt að gefa fræðilegri verkefnum forgang umfram önnur.

 

2. Afgreiðsla umsókna

Starfsmaður sjóðsins afgreiðir umsóknir samkvæmt starfsreglum þessum og í samræmi við ákvarðanir sjóðsstjórnar. Þær umsóknir sem uppfylla skilyrði úthlutunarreglna þessara skulu afgreiddar af starfsmanni sjóðsins mánaðarlega, að júlí undanskildum, og koma þær til greiðslu 15. hvers mánaðar.

Stjórn sjóðsins sker úr um vafaatriði. t.d. um sjóðsaðild eða styrkhæfi umsókna og tekur á öðrum málum sem upp kunna að koma. Stjórn sjóðsins kemur saman sex sinnum á ári að jafnaði.

 

3. Skyldur launagreiðenda

Einungis einstaklingar geta sótt um styrk séu þeir sjóðsfélagar. Sjóðsstjórn getur lækkað styrk ef aðrir taka þátt í kostnaði við verkefnið. Telji stjórn að umsókn til sjóðsins ætti að greiðast af öðrum áskilur hún sér rétt til að hafna umsókn.

 

4. Umsækjendur

Ef að greitt er fyrir sjóðsfélaga 800 kr. eða meira á mánuði í Starfsmenntunarsjóð Fíh og sjóðsfélagi uppfyllir skilyrði fyrir rétt til aðildar, getur sjóðsfélagi sótt um hámarksstyrkveitingu úr sjóðnum vegna verkefna sem getið er um í tölulið 5, að því gefnu að a.m.k. tvö ár séu liðin frá því að umsækjandi fékk greiddan hámarksstyrk úr sjóðnum. Ef ekki er sótt um hámarksstyrk þá getur sjóðsfélagi sótt um oftar en einu sinni á hverju 24 mánaða tímabili.

 

5. Styrkhæf verkefni og upphæð styrks

5.1 Inntak verkefnis

Verkefni þarf að jafnaði að varða fagsvið hjúkrunar sjóðsfélaga til að vera styrkhæft og auka almenna starfshæfni hans á sviði hjúkrunar, stjórnunar, samskiptatækni, sjálfstyrkingar og tungumála. Sjóðstjórn metur vafatilvik.

 

5.2 Staðsetning verkefnis

Hægt er að sækja um styrk vegna verkefna innanlands sem utan, svo sem námskeið, ráðstefnur, málþing, faglegar kynnisferðir og viðbótarnám í tengslum við hjúkrun. Lýsing verkefnis verður að fylgja með umsókninni svo sjóðstjórn geti tekið afstöðu til hennar.

 

5.3 Hvað er styrkt?

Sjóðsfélagar geta fengið styrk vegna útlagðs:

  • Kostnaðar við nám, námskeið, ráðstefnur, málþing og faglegar kynnisferðir á heilbrigðisstofnanir sem innihalda skipulagða dagskrá í a.m.k. 6-8 klst. og/eða greitt er fyrir.
  • Ferðakostnaðar (s.s. vegna flugfargjalda eða aksturskostnaðar).
  • Gistikostnaðar.

 

5.4 Hvað er ekki styrkt?

Sjóðsfélagar geta ekki fengið styrk vegna:

  • Uppihalds, fæðiskostnaðar og ferða innan borga.
  • Launataps.
  • Bókakostnaðar eða námsgagna.
  • Tómstundanámskeiðs.

 

5.5 Fyrirvarar

Verkefni er styrkhæft í allt að 12 mánuði frá því að til útgjalda var stofnað. Kvittanir mega því vera allt að 12 mánaða gamlar.

Aðeins er hægt að nota hverja greiðslukvittun einu sinni.

Ekki er hægt að flytja ónýttan styrk milli viðmiðunartímabils þ.e. 24 mánaða tímabils.

 

5.6. Styrktarfjárhæð

Heildarstyrkfjárhæð er 350.000 kr. á hverju 24 mánaða tímabili.

 

5.7 Hálfur styrkur

Ef greitt er undir 800 kr., mánaðarlega í sjóðinn fyrir sjóðsfélaga síðustu þrjá mánuði áður en viðburðurburður fer fram sem sótt er um styrk fyrir í sjóðinn á hann rétt á hálfum styrk, eða 175.000 kr. hámarksstyrkveitingu á hverju 24 mánaða tímabili. Ef óljóst er hvort að sjóðsfélagi eigi rétt á fullum eða hálfum styrk þá er reiknað út meðaltal inngreiðslna iðgjalda síðustu þriggja mánaða, talið frá þeim degi sem umsókn berst til sjóðsins. Ef reiknað meðaltal er 800 kr. þá á viðkomandi rétt á fullum styrk, annars hálfum.

 

6. Umsóknir, frágangur þeirra og afgreiðsla

6.1 Umsóknir

Umsóknum ásamt gögnum skal skila inn rafrænt til sjóðsins. Sótt er um rafrænt á Mínum síðum.

6.2 Frágangur umsókna

Sjóðsfélagar skulu vanda frágang umsókna. Krafist er nákvæmrar lýsingar á verkefni  sem umsækjandi hyggst verja styrknum til. Ef umsókn uppfyllir ekki skilyrði fyrir úthlutun er henni hafnað.

Til nauðsynlegra gagna teljast:

  • Nafn á verkefni sem sótt er um (námi, námskeiði, málþingi, ráðstefnu).
  • Nákvæm lýsing á verkefni sem sótt er um.
  • Staðfesting greiðslu fyrir verkefni sem sótt er um.

Umsækjandi getur fylgst með framgangi umsóknar á mínum síðum á hjukrun.is.

 

6.3 Afgreiðsla umsókna hjá sjóðnum

Fullgildar umsóknir sem berast sjóðnum fyrir 1. dag hvers mánaðar eru afgreiddar af starfsmanni sjóðsins sbr. 2. gr. Aðrar umsóknir sem ekki uppfylla 2. gr eru afgreiddar af sjóðsstjórn.  Þær umsóknir sem berast í:

  • desember og janúar eru afgreiddar í febrúar.
  • febrúar og mars eru afgreiddar í apríl.
  • apríl og maí eru afgreiddar í júní.
  • júní og júlí eru afgreiddar í ágúst.
  • ágúst og september eru afgreiddar í október.
  • október og nóvember eru afgreiddar í desember.

Þegar umsókn hefur verið afgreidd þá berst greiðslutilkynning til umsækjanda.

 

7. Styrkveiting úr sjóðnum

7.1 Greiðslustaðfesting

Greiðslur úr sjóðnum fara fram gegn framvísun greiðslukvittana. Á greiðslukvittunum þarf að koma fram nafn, kennitala og fyrir hvað er greitt. Ef greiðslukvittun er glötuð að fullu tekur stjórn sjóðsins ákvörðun um afgreiðslu styrksins.

 

7.2 Útborgun styrks

Styrkir úr sjóðnum eru greiddir út á bilinu 13.-15. dags þess mánaðar sem úthlutað er eða næsta virka dag þar á eftir. Greiðsla styrkja felur alltaf í sér endurgreiðslu útlagðs kostnaðar. Styrkur er aldrei greiddur út fyrirfram.


7.3 Upplýsingar til skattyfirvalda

Í byrjun hvers árs eru sendar upplýsingar til skattayfirvalda þar sem gerð er grein fyrir styrkþegum og styrkupphæðum síðastliðins árs.

 

7.4 Greiðslugögn og afgreiðsla á styrkveitingu úr sjóðnum

Sjóðsfélaga ber að skila inn tilskildum gögnum, svo sem reikningum og staðfestingum til sjóðsins. Gögnum þarf að skila samhliða umsókn.

 

8. Tími milli styrkveitinga, ofgreiðsla

8.1 Sótt um aftur í tímann

Hægt er að sækja um styrk fyrir verkefni allt að 12 mánuði aftur í tímann miðað við lok verkefnis. Móttaka umsóknar verður því að vera innan 12 mánaða frá lokum verkefnis.

 

8.2 Tvígreiðsla eða ofgreiðsla styrks

Ef mistök verða í afgreiðslu styrkumsóknar eða greiðslu styrks mun starfsmaður sjóðsins leitast við að leiðrétta mistök eins fljótt og hægt er. Ef sjóðsfélagi hefur fengið tvígreiddan styrk eða ofgreidda styrkupphæð þarf hann að tilkynna sjóðnum mistökin og endurgreiða þegar í stað þá upphæð sem munar til sjóðsins.

 

9. Réttur til að hætta við umsókn

Ef umsókn er dregin til baka áður en styrkur er greiddur hefur umsóknin engin áhrif á réttindi umsækjanda hjá sjóðnum.

 

10. Hlé eða rof á sjóðsaðild

10.1 Launalaust leyfi

Sjóðsfélagi í launalausu leyfi á rétt á styrk samkvæmt reglum sjóðsins fyrstu sex mánuðina að öðrum skilyrðum uppfylltum. Skila þarf inn með umsókn vottorði frá vinnuveitanda sem staðfestir að viðkomandi sé í launalausu leyfi.

 

10.2 Atvinnuleysi

Atvinnulausir sjóðsfélagar geta sótt um og fengið styrk úr sjóðnum samkvæmt eftirfarandi reglum:

Skilyrði. Umsækjandi hefur átt aðild að sjóðnum einhvern tíma á síðustu 12 mánuðum og verið sjóðsfélagi í a.m.k. 6 mánuði við upphaf atvinnuleysis, þ.e. verið í vinnu hjá launagreiðanda sem greiðir framlag fyrir viðkomandi í sjóðinn.

Styrkhæfi. Sömu reglur gilda eins og fyrir aðra sjóðsfélaga. Að auki má veita styrk til námskeiðs sem tengist beinlínis atvinnuleysi sjóðsfélaga eða auðveldar honum að öðlast starf á ný.

 

10.3 Veikindi

Sjóðsfélagar halda réttindum sínum í sjóðnum fyrir það tímabil sem þeir fá greidda sjúkradagpeninga frá Styrktarsjóði Fíh. Eins er farið með mál sjóðsfélaga sem þiggja endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og þeirra sem atvinnulausir eru sbr. 10.2

 

11. Málskotsréttur

Ef sjóðsfélagi er ósáttur við afgreiðslu sjóðstjórnar á styrkumsókn sinni og fylgigögnum á hann rétt á að óska eftir endurskoðun á ákvörðun sjóðstjórnar. Beiðni um endurskoðun skal fylgja rökstuðningur og nánari útskýringar á verkefninu sem hafnað var. Umsóknin verður aftur tekin fyrir á næsta fundi.

 

12. Gildistaka og önnur ákvæði

Reglur þessar eru samþykktar í stjórn sjóðsins og taka gildi frá og með undirritun reglnanna. Við gildistökuna falla úr gildi eldri úthlutunarreglur og aðrar ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við reglur þessar.

 

Breyttar reglur eru birtar á vefsvæði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, www.hjukrun.is
Samþykki stjórn sjóðsins breytingar á reglum þessum verða þær kynntar á viðeigandi vettvangi og uppfærðar á vefsvæði.

Upplýsingar um starfsemi sjóðsins birtast á vefsvæði félagsins og öðrum miðlum eftir því sem tilefni þykir til.

 

Reglur þessar voru samþykktar 9. mars 2023.

1. gr. Heiti, varnarþing og heimili

Sjóðurinn heitir starfsmenntunarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Markmið sjóðsins

Markmið starfsmenntunarsjóðs Fíh er að styrkja hjúkrunarfræðinga til viðbótarmenntunar og sí- og endurmenntunar í tengslum við störf þeirra við hjúkrun og nýta sem best tekjur sjóðsins í þeim tilgangi. Þessu markmiði skal meðal annars náð með því að verja fjármunum sjóðsins til eftirfarandi verkefna:

  • Styrkja hjúkrunarfræðinga til að stunda nám eða sækja einstök námskeið, hvort sem námið er í framhaldi af fyrri menntun eða er til að styrkja hann í starfi sem hjúkrunarfræðingur
  • Styrkja hjúkrunarfræðinga til þess að sækja ráðstefnur og kynna sér nýjungar jafnt innanlands sem utan

3. gr. Aðild

Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá launagreiðendum sem gert hafa kjarasamning við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þar sem samið er um framlag í starfsmenntunarsjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hér eftir nefndir sjóðsfélagar. Sjóðsaðild byggir á því að greitt sé til sjóðsins iðgjald sem nemur 0,22% af heildarlaunum. Jafnframt eiga hjúkrunarfræðinemar sem þiggja laun skv. kjarasamningi Fíh við samband íslenskra sveitarfélaga aðild að sjóðnum. Aðrir geta átt aðild skv. ákvörðun sjóðsstjórnar.

Réttur til aðildar að sjóðnum hefst þegar iðgjald fyrir sjóðsfélaga hefur verið greitt í samtals sex mánuði, þar af samfellda þrjá mánuði. Sjóðsfélagi heldur aðildarrétti í fæðingarorlofi. Lífeyrisþegi heldur aðildarrétti í 12 mánuði frá því að viðkomandi hættir starfi.

4. gr. Sjóðstjórn

Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum stjórnarmönnum, tveimur fulltrúum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, einum fulltrúa fjármálaráðherra og einum fulltrúa frá Reykjavíkurborg. Formaður stjórnar skal vera fulltrúi Fíh.

Enginn stjórnarmaður skal sitja lengur í stjórn en átta ár samfellt. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum sjóðsins. Stjórn skal móta og þróa starfsemi sjóðsins til samræmis við markmið hans. Sjóðstjórn setur almennar úthlutunarreglur og tekur ákvarðanir í vafatilfellum.  Úthlutunarreglur skulu endurskoðaðar að lágmarki einu sinni á ári og breytingar á þeim kynntar á vefsvæði Fíh, hjukrun.is.

Stjórn sjóðsins kemur að jafnaði saman sex sinnum á ári; í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember.

5. gr. Fjármögnun starfsmenntunarsjóðs

Launagreiðendur greiða iðgjald til sjóðsins sem nemur 0,22% af heildarlaunum starfsmanns samkvæmt ákvæðum kjarasamninga um framlag í starfsmenntunarsjóð.

Auk þess er helmingur framlags launagreiðenda í vísindasjóð færður í starfsmenntunarsjóð skv. bókun 3 í miðlunartillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Fíh og ríkisins 2020.
 

Breytingar á starfsreglum sjóðsins og slit sjóðsins

Starfsreglum þessum má breyta með ákvörðun stjórnar sjóðsins. Ákvörðun um að leggja Starfsmenntunarsjóð Fíh niður eða sameina hann öðrum aðila skal einnig tekin af stjórn sjóðsins. Í öllum tilfellum skal það samþykkt með atkvæðum allra stjórnarmanna og hljóta samþykkt stjórnar Fíh, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar.

 

Reykjavík. 4. janúar 2021

Eva Hjörtína Ólafsdóttir, formaður, tilnefnd af Fíh

Ásdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af Fíh

Aldís Magnúsdóttir, tilnefnd af Fjármálaráðuneyti

Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Reykjavíkurborg

Steinunn Helga Björnsdóttir starfsmaður sjóðsins

Fannst þér efnið hjálplegt?

Af hverju ekki?

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála