Hjukrun.is-print-version

Að vinna margslungin verk af fagmennsku í breytilegu umhverfi

herdis
Um störf hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum
Katrín Blöndal, Landspítala, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Bergþóra Eyjólfsdóttir, Landspítala, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, Landspítala


Umræða um hjúkrun er oft einsleit og snýst oft um annríki hjúkrunarfræðinga. Mikilvægt er að koma með fleiri sjónarhorn í þá umræðu, greina í hverju annríkið felst og gefa skýra mynd af fjölbreyttum störfum hjúkrunarfræðinga. Störf hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum fela í stórum dráttum í sér að annast sjúklinga sem þarfnast skurðaðgerðar. Ekki er þó vitað með vissu hvað starfið felur nákvæmlega í sér enda hefur það lítt verið kannað hérlendis.

Markmið rannsóknarinnar var að greina hvað felst í störfum hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum. Gagnasöfnun var eigindleg en myndaður var einn rýnihópur með tíu hjúkrunarfræðingum frá átta deildum á skurðlækningasviði. Hópurinn hittist tíu sinnum þar sem þátttakendur greindu nákvæmlega frá einni vakt í starfi sínu og atvikum sem þar höfðu komið upp, staldrað var við ákveðin atriði og kafað dýpra í þau. Umræður hópsins voru teknar upp á segulband, afritaðar, þemagreindar og þemun borin undir þátttakendur.

Greind voru fimm meginþemu og eitt yfirþema: „Í hringiðu faglegrar færni“ og stendur það fyrir fjölbreytt störf hjúkrunarfræðinga sem unnin eru af fagmennsku í síbreytilegu umhverfi. Meginþemun eru: 1) að vinna margslungin verk af færni, 2) að finna hið sérstæða meðal hins almenna, 3) að fást við flæði upplýsinga og samskipti, 4) að hrærast í síbreytilegu umhverfi og láta hlutina ganga og 5) að nýta starfsþroskann og njóta hans.

Þemun endurspegla að þungamiðjan í starfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningasviði er samskipti við sjúklinga, aðstandendur og samstarfsfólk. Starfið felur einnig í sér að beita tæknilegri færni, hafa eftirlit með hugsanlegum fylgikvillum aðgerða og óeðlilegu ástandi, svo og að bregðast sífellt við breyttu ástandi á deildinni.

Lykilorð: hjúkrun, inntak hjúkrunar, rýnihópur

1. tbl. 2010: Að vinna margslungin verk af fagmennsku í breytilegu umhverfi: Um störf hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeildum

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála