Mat skurðsjúklinga á verkjum og verkjameðferð
Lára Borg Ásmundsdóttir, Landspítala
Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, Landspítala
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Góð verkjameðferð er mikilvæg fyrir skjótan og góðan bata sjúklinga. Framfarir hafa orðið á síðustu árum í verkjameðferð skurðsjúklinga en íslenskar og erlendar rannsóknir á reynslu þeirra sýna þó að sjúklingar hafa talsverða verki eftir skurðaðgerð.
Markmið þessarar lýsandi þversniðskönnunar var að kanna hve algengir og miklir verkir eru hjá sjúklingum fyrir og eftir aðgerð; samband verkja við daglegar athafnir, líðan sjúklinga og samskipti við aðra; mat þeirra á fræðslu um verki og verkjameðferð; viðhorf sjúklinga til verkja og verkjalyfja; ánægju sjúklinga með verkjameðferð og væntingar sjúklinga til verkjameðferðar eftir aðgerð.
Úrtak rannsóknarinnar voru 216 sjúklingar sem gengust undir skurðaðgerð á Landspítala í febrúar 2006. Gagna var aflað með spurningalista byggðum á spurningalista bandarísku verkjasamtakanna og með viðbótarspurningum frá höfundum. Spurt var um bæði styrk verkja og áhrif verkjanna með notkun tölukvarða. Spurningalistinn var afhentur sjúklingum að kvöldi aðgerðardags eða daginn eftir aðgerð. Meirihluti sjúklinganna (61,6%) gerði ráð fyrir því að hafa verki eftir aðgerð að meðalstyrk 5,4. Mikill meirihluti sjúklinga (80,8%) hafði haft verki síðastliðinn sólarhring þegar spurningalista var svarað. Meðaltalsstyrkur verkja var að jafnaði 4,0 og meðaltalsstyrkur versta verkjar 5,9. Konur og yngri sjúklingar greindu frá verri verkjum en karlar og eldri sjúklingar. 90,7% þátttakenda voru ánægðir eða mjög ánægðir með verkjameðferð. Upplýsingar um verki eftir skurðaðgerð fengu 76,3% sjúklinga og um mikilvægi verkjameðferðar 50,5%. Sjúklingar, sem voru með verki fyrir aðgerð, gerðu ráð fyrir meiri verkjum eftir aðgerð, greindu frá verri verkjum eftir aðgerð og höfðu neikvæðari viðhorf til verkja og verkjalyfja.
Niðurstöðurnar benda eindregið til þess að ástæða sé til að bæta verkjameðferð skurðsjúklinga og fræðslu um verki og verkjameðferð.
Lykilorð: Verkir, verkjameðferð, skurðsjúklingar, sjúklingafræðsla.
2.tbl. 2010: Mat skurðsjúklinga á verkjum og verkjameðferð