Hjukrun.is-print-version

Mat á líkamlegri, andlegri og félagslegri færni og þarfir aldraðra sem biðu hvíldarinnlagnar á öldrunarsviði Landspítala


Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Sigrún Bjartmarz, Landspítala
Díana Dröfn Heiðarsdóttir, Landspítala
Steinunn Arna Þorsteinsdóttir, Landspítala


Tilgangur þessarar rannsóknar var að fá lýsandi mynd af líkamlegri, andlegri og félagslegri færni og þörfum aldraðra sem biðu eftir hvíldarinnlögn á öldrunarsviði Landspítala vorið 2007. Einnig var leitast við að kanna væntingar aldraðra og aðstandenda til þjónustunnar. 

Rannsóknin var megindleg með lýsandi sniði. Úrtakið var 24 einstaklingar sem bjuggu á eigin heimilum og voru á biðlista fyrir hvíldarinnlögn á öldrunarsviði Landspítala. Tekin voru viðtöl við þátttakendur eða aðstandendur þeirra. Notað var RAI-HC-matstæki sem greinir þarfir og styrkleika einstaklinga á ýmsum sviðum og er ætlað heilbrigðis- og félagsþjónustu. 

Niðurstöður sýndu að allir þurftu aðstoð við böðun og almennt var mikil þörf fyrir aðstoð við daglegar athafnir. Hjá 16 af 24 hafði orðið afturför í sjálfsbjargargetu við daglegar athafnir síðustu mánuði. Um helmingur þátttakenda var með minnisskerðingu og þurftu margir aðstoð og eftirlit allan sólarhringinn. Af 24 þátttakendum töldu 16 þeirra töldu heilsufar sitt vera lélegt eða sæmilegt. Meðal þátttakenda var andleg vanlíðan, einangrun og einmanaleiki algeng og þátttaka í félagslífi lítil.

Álykta má út frá niðurstöðum að þessi hópur aldraðra þarfnist mikillar aðstoðar og að hún sé að miklu leyti veitt af nánasta aðstandanda. Þar sem mikið álag er á aðstandendum er þörf á aukinni heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir þennan hóp. Hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk gegnir mikilvægu hlutverki við mat á þjónustuþörf þess aldraða og umönnunaraðila hans sem og að leiðbeina um hugsanleg þjónustuúrræði.

Lykilorð: RAI-HC, ADL-færni, IADL-færni, umönnunarbyrði, hvíldarinnlögn.

3. tbl. 2010: Mat á líkamlegri, andlegri og félagslegri færni og þarfir aldraðra sem biðu hvíldarinnlagnar á öldrunarsviði Landspítala

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála