Fræðsla skurðsjúklinga
Inntak, ánægja og áhrifaþættir
Katrín Blöndal, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
Heiða Steinunn Ólafsdóttir, skurðlækningasviði Landspítala
Sesselja Jóhannesdóttir, skurðlækningasviði Landspítala
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
Rannsóknir hafa sýnt margháttaðan ávinning sjúklingafræðslu en lítið er vitað um gagnsemi fræðslu eða ánægju skurðsjúklinga á Íslandi með veitta fræðslu.
Megintilgangur þessarar rannsóknar var að lýsa fræðslu sem skurðsjúklingar á Landspítala telja sig fá á sjúkrahúsi og heima fjórum vikum síðar og meta hvað hefur áhrif á ánægju þeirra með fræðsluna. Úrtakið var 733 innkallaðir sjúklingar sem fóru í valaðgerð 15. janúar til 15. júlí 2007.
Svörun var 74%. Gagna var aflað með tveim spurningalistum, á sjúkrahúsinu og heima fjórum vikum eftir heimkomu. Spurt var um sjúklingafræðslu og ánægju með hana, kvíða og þunglyndi, verki og önnur einkenni, aðdraganda sjúkrahúsvistar og sjúkrahúsdvöl, heilsufar og árangur aðgerða, ánægju með umönnun og stuðning og bakgrunn þátttakenda. Almennt voru sjúklingar ánægðir með fræðsluna. Þeir voru þó ánægðari aðspurðir á spítalanum heldur en heima. Atriði, sem sjúklingar óskuðu frekari fræðslu um á sjúkrahúsinu, voru einkum fylgikvillar aðgerðar, hreyfing, sjúkdómur og verkir en eftir heimkomu ýmislegt sem tengist verkjum og afturbata. Minni ánægja með fræðslu fyrir aðgerð tengdist meiri sársauka á spítalanum, minni gagnsemi upplýsinga fyrir aðgerð, minni stuðningi vina og ættingja á spítala og minni ánægju með umönnun á spítalanum. Þættir, sem höfðu áhrif á minni ánægju með fræðslu á spítala um ferlið eftir að heim var komið, tengdust meðal annars kvíðaeinkennum á spítala og heima, þunglyndiseinkennum á spítala og heima, sársauka á spítala og almennt einkennum fyrir aðgerð og heima. Aðrir þættir, sem þessu tengdust, voru að vilja fá betri upplýsingar, hafa ekki náð sér eftir aðgerð, minni ánægja með stuðning vina og ættingja svo og minni ánægja með umönnun. Þá voru yngri sjúklingar og konur óánægðari.
Fræðsluþarfir skurðsjúklinga eru umfangsmiklar og vara fram yfir sjúkrahúsvistina. Bæta þarf einstaka þætti fræðslunnar og skipuleggja sérstaklega mat, fræðslu og eftirfylgd sjúklinga sem fyrirsjáanlega vegnar ver. Ávinningur gæti orðið aukin ánægja sjúklinga og ódýrari heilbrigðisþjónusta vegna fækkunar einkenna, fylgikvilla og endurinnlagna.
Lykilorð: Skurðsjúklingar, fræðsla, hjúkrunarfræðingar.
1. tbl. 2011: Fræðsla skurðsjúklinga: Inntak, ánægja og áhrifaþættir