Nýburar í áhættumati á vökudeild
Gróa Sturludóttir, vökudeild 23D, Landspítala
Katrín Kolka Jónsdóttir, vökudeild 23D, Landspítala
Margrét Eyþórsdóttir, vökudeild 23D, Landspítala
Guðrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Á vökudeild Barnaspítala Hringsins kemur fjöldi nýbura á ári í áhættumat í stuttan tíma strax eftir fæðingu vegna ýmissa skammvinnra vandamála. Ástand þeirra og inngrip er skráð á sérstök athugunareyðublöð. Samsetning
markviss athugun eða rannsókn liggur fyrir um ástand þeirra.
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta ástand þeirra barna sem ekki verða lögð inn á gjörgæslu í kjölfar áhættumats, ástæður fyrir matsinnlögn þeirra, lengd dvalar og gagnreynt fræðilegt samhengi þess áhættumats sem fram fer.
Í úrtaki voru börn skráð í áhættumat allt árið 2008 sem ekki lögðust inn á vökudeild í kjölfarið. Ferlið frá innlögn til áhættumatsað útskrift var skoðað og upplýsingar fengnar um samsetningu hópsins, lengd áhættumatsins og hvaða mynd athugunarblöðin gáfu af þeim. Af 409 nýburum voru gögn frá 398 skoðuð en upplýsingum var ábótavant hjá
Í úrtaki voru drengir í meirihluta (55%) og áhættumatið varði skemur en 2 klst. hjá 74,5% barnanna en skemmst í 10 öndunarerfiðleikar (34,5%), slappleiki og/eða lágur Apgar (10,2%), keisarafæðing (9,5%) og grænt legvatn (7,3%). Meðgöngulengd spannaði 245 til 300 daga, 277 dagar að meðaltali. Samspil ástands og lengdar legu benti til að stytta mætti legutíma stórs hluta úrtaks og að e.t.v. hefði mátt sleppa áhættumatsinnlögn í allt að þriðjungi tilfella.
Þekking þessi nýtist til skoðunar á því hvernig megi bæta eftirlit með áhættunýburum. Frekari rannsókna er þörf til að koma í veg fyrir óþarfa aðskilnað móður og barns vegna áhættumats í kjölfar fæðingar.
Lykilorð: Nýburi, áhættumat, lífsmörk, öndunarerfiðleikar, Apgar.
4. tbl. 2011: Nýburar í áhættumati á vökudeild: Lýsandi rannsókn á eftirliti eins árgangs