Samvinna í heimahjúkrun eldri borgara
Kristín Björnsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Tilgangur þessarar rannsóknar var að öðlast þekkingu á vandaðri og árangursríkri heimaþjónustu sem stuðlar að vellíðan eldri borgara sem eru 80 ára og eldri og búa heima. Athyglin beindist að starfsháttum í heimahjúkrun. Í þessari grein er fjallað um samvinnu. Byggt var á gerendanetskenningunni (Actor Network Theory) þar sem reynt er að rekja hvernig tengsl skapa og móta gerendur og hafa áhrif á störf og daglegt líf.
Aðferðin var etnógrafísk og gagnasöfnun fór fram á fjórum mánuðum árið 2010. Rannsóknargögn voru vettvangslýsingar af samstarfsfundum og heimsóknum hjúkrunarfræðinga (N 5) og sjúkraliða (N 4) til eldri borgara (N 15) og viðtöl við sömu aðila.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að samvinna meðal starfsmanna heimaþjónustunnar, við sjúklinga og aðstandendur þeirra og við samstarfsaðila innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar var lykilatriði í árangursríkri þjónustu. Þessi samvinna byggði á fjölbreyttri þekkingu og einkenndist af sameiginlegum skilningi á áhersluatriðum. Heimahjúkrun má líkja við viðkvæmt net sem starfsmenn reyna að styrkja og nýta.
Álykta má út frá ofangreindum niðurstöðum að forsenda fyrir árangursríkri heimahjúkrun sé að tekist hafi að mynda góða samvinnu og samstarf hinna fjölmörgu aðila sem aðstoða eldri borgara við að líða vel á heimilum sínum. Bent er á leiðir til að viðhalda og efla þá samvinnu og þætti sem veikja hana.
Lykilorð: Heimaþjónusta, heimahjúkrun, samvinna, teymisvinna, gerendanetskenning, etnógrafía.
4.tbl. 2011: Samvinna í heimahjúkun eldri borgara