Starfstengd viðhorf og líðan hjúkrunarfræðinga á Landspítala
Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir, hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir, Háskóla Íslands
Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Vinnuálag í heilbrigðisþjónustu hefur aukist síðustu ár og einkenni um kulnun meðal heilbrigðisstarfsmanna er vaxandi vandi hérlendis og erlendis. Rannsóknir sýna að slíkum aðstæðum fylgir hætta á mistökum sem oft má rekja til mikils álags auk samskipta- og stjórnunarvanda. Nýjar rannsóknir undirstrika mikilvægi úrbóta á starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna, einkum með því að tryggja að starfsfólk hafi áhrif á ákvarðanir um eigin störf og njóti félagslegs stuðnings frá samstarfsfólki og stjórnendum.
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta einkenni kulnunar meðal hjúkrunarfræðinga á bráðalegudeildum (lyf- og skurðlækninga) á Landspítala (LSH) og kanna tengsl við sálfélagslega þætti, einkum vinnuálag, sjálfræði og stuðning í starfi.
Gagnasöfnun fór fram í mars 2008. Hjúkrunarfræðingar (n=206) svöruðu tveimur viðurkenndum spurningalistum um sálfélagslegt starfsumhverfi og einkenni kulnunar. Kí-kvaðrat var notað til að skoða tengsl bakgrunnsbreyta og sálfélagslegra þátta og t-próf til
að kanna mun á milli hópa og hugsanlegar breytingar á umfangi kulnunar miðað við fyrri rannsókn á Landspítala.
Niðurstöður sýndu að vinnuálag var mikið og aðeins þriðjungur þátttakenda sagðist oft geta haft áhrif á mikilvægar ákvarðanir fyrir starfið. Félagslegur stuðningur reyndist einnig mikill og sérstaklega meðal yngra starfsfólks. Einkenni um hlutgervingu voru meiri en í fyrri rannsókn á LSH og mat á eigin vinnuafköstum var lakara en fyrri rannsókn hafði leitt í ljós. Vísbending kom fram um aukið tilfinningaþrot á lyflæknissviði I og tengdist það
vinnuálagi. Niðurstöður benda eindregið til að efla þurfi verndandi þætti í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á LSH þar sem áhersla er lögð á sjálfræði í starfi, uppbyggileg samskipti og stuðning stjórnenda.
Lykilorð: Vinnuálag, ákvarðanavald, stuðningur, kulnun, sálfélagslegt starfsumhverfi.
4. tbl. 2011: Starfstengd viðhorf og líðan hjúkrunarfræðinga á Landspítala