Hjukrun.is-print-version

Þýðing og forprófun á vonleysiskvarða Becks

herdis

Rósa María Guðmundsdóttir, Reykjalundi
Jóhanna Bernharðsdóttir, Háskóla Íslands og Landspítala


Tilgangur þessarar rannsóknar var að þýða og forprófa vonleysiskvarða Becks og meta áreiðanleika og réttmæti íslensku þýðingarinnar. Vonleysiskvarðinn hefur aðallega verið notaður til að meta vonleysi meðal þunglyndra einstaklinga auk þess sem hann spáir fyrir um sjálfsvígshættu. Kvarðinn inniheldur 20 fullyrðingar og metur jákvæð og neikvæð viðhorf einstaklingsins til framtíðarinnar.

Aðferð: Þýðingin var unnin samkvæmt þýðingarferli Brislin og var forprófun gerð á geðsviði Reykjalundar. Hún fór fram í tveimur áföngum og var um hentugleikaúrtak að ræða. Listinn var lagður fyrir 161 einstakling sem einnig voru spurðir um kyn, aldur, hjúskaparstöðu, barneignir, menntun, atvinnu, fjárhag og innlagnarástæðu.

Niðurstöður: Um helmingur þátttakenda var á aldursbilinu 30-49 ára og voru konur í meirihluta (65,2%). Flestir nefndu þunglyndi sem innlagnarástæðu (84,5%) en einnig nefndu margir kvíða (66,5%) og verki (44,7%). Að meðaltali reyndist vonleysi meðal sjúklingahópsins vera 10,02 stig (Sf=5,45) eða miðlungs vonleysi og var meira en helmingur þátttakenda (56%) með miðlungs eða alvarlegt vonleysi. Marktækur munur reyndist vera á vonleysi eftir fjárhagsstöðu en vonleysi var meira meðal þeirra sem töldu fjárhagsstöðu sína slæma (49,3%). Forprófunin leiddi í ljós að innri áreiðanleiki íslensku þýðingarinnar eða Chronbachs alfa var góður eða 0,90. Þáttagreining leiddi í ljós þrjá meginþætti en þeir voru nefndir: Skortur á áhugahvöt, jákvæðar væntingar til framtíðar og viðhorf til framtíðar.

Ályktanir: Rannsakendur vonast til að vonleysiskvarði Becks geti nýst sem viðbót við annað faglegt mat á sálrænni líðan og að hægt verði að nota hann í forvarnarskyni til að koma auga á einstaklinga í áhættu hvað varðar vonleysi og sjálfsvígshættu.

Lykilorð: Vonleysi, vonleysiskvarði Becks, þýðing og forprófun.

4. tbl. 2011: Þýðing og forprófun á vonleysiskvarða Becks

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála