Ungar mæður. Skynjaður stuðningur í barneignarferlinu
Hildur Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Sóley S.Bender, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að skyggnast inn í reynsluheim unglingsmæðra og leitast við að öðlast dýpri sýn á skynjun þeirra á stuðningi og stuðningsleysi í barneignaferlinu.
Aðferð: Rannsóknarsniðið var eigindlegt og stuðst var við fyrirbærafræðilega aðferð. Rannsóknin var unnin í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem ljósmæður í mæðravernd aðstoðuðu við úrtaksval. Um tilgangsúrtak 6 stúlkna á aldrinum 14-17 ára var að ræða. Alls voru tekin 9 viðtöl, ýmist bæði á meðgöngu og/eða eftir fæðingu og fóru þau fram á tímabilinu febrúar 2010 til maí 2011. Hvert viðtal var skráð orðrétt niður og gögnin síðan greind með hliðsjón af aðferð Colaizzi.
Niðurstöður: Dregin voru út tvö meginþemu: Meðbyr og Mótbyr og fjögur undirþemu fyrir hvort þeirra: væntumþykja og virðing eða vanvirðing og vantraust; samsömun og skilningur jafningja eða afskipta- og skilningsleysi jafningja; nærvera eða fjarlægð umönnunaraðila og gagnleg eða gagnslítil fræðsla. Flestar stúlkurnar skynjuðu stuðningsleysi í formi neikvæðs viðmóts frá kunningjum, fagaðilum og samfélaginu. Stuðning fengu þær helstan frá mæðrum, barnsfeðrum, tengdamæðrum og hópi ungra mæðra á heimasíðunni draumaborn.is. Ungu mæðurnar og börn þeirra glímdu við ýmis heilsufarsleg vandkvæði og
álagsþætti.
Ályktanir: Frásagnir viðmælenda gáfu til kynna að ekki sé nægilega vel staðið að stuðningi við ungar mæður í ljósi aðstæðna og ungs aldurs. Þörf er á nánari úttekt á þjónustu og stuðningi sem í boði er fyrir þennan hóp.
Lykilorð: Unglingsmæður, stuðningur, stuðningsleysi, barneign, fyrirbærafræði.
4. tbl. 2011: Ungar mæður. Skynjaður stuðningur í barngeignarferlinu