Tengsl þekkingar, sjálfseflingar, streitu og tegundar sykursýki við langtímasykurgildið
Árún K. Sigurðardóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
Kjartan Ólafsson, hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri
Þeim fjölgar ört sem fá sykursýki en sykursýkin getur valdið fylgikvillum sem rýra lífsgæði og auka kostnað við heilbrigðisþjónustu. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina hvað hefur áhrif á langtímasykurgildið (HbA1c-gildið). Hugað er sérstaklega að þekkingu, sjálfseflingu og streitu sem og að bakgrunnsþáttum sem áhrif geta haft á langtímasykurgildið.
Þátttakendur voru 143 einstaklingar með sykursýki. Níutíu einstaklingar tóku þátt í rannsókn 1, sem framkvæmd var árið 2002 meðal fólks með sykursýki af tegund 1. Í rannsókn 2 voru þátttakendur 53 með sykursýki af tegund 2, en rannsóknin var gerð árin 2005-2007. Allir svöruðu þrem spurningalistum, auk þess spurningum um bakgrunnsþætti. Langtímasykurgildið var mælt hjá öllum. Borið saman við fólk með sykursýki af tegund 1 svaraði fólk með tegund 2 færri spurningum rétt á þekkingarkvarða, hafði minni skilning á meðferð sykursýkinnar og átti verra með að laga sig „á jákvæðan hátt að þeirri staðreynd“ að vera með sykursýki. Þátttakendur með langtímasykurgildi ≥7,5% sýndu marktækt minni skilning á sykursýkismeðferð sinni heldur en þátttakendur með langtímasykurgildi undir 7,5%.
Streita og menntun höfðu fylgni við langtímasykurgildið og þau tengsl virðast að mestu óháð öðrum þáttum. Einstaklingar með framhaldsskólapróf eru næstum fimmfalt líklegri en einstaklingar með grunnskólamenntun eingöngu til að mælast með langtímasykurgildi undir 7,5%. Huga þarf sérlega vel að fólki sem er með sykursýki af tegund 2 og litla menntun þar sem það sýndi minni skilning á meðferð sjúkdómsins og var með hærra langtímasykurgildi en þeir sem höfðu framhaldsskólapróf eða meiri menntun. Einnig þarf heilbrigðisstarfsfólk að huga vel að þeim sem hafa fengið mörg stig á streitukvarða þar sem það tengist háu langatímasykurgildi.
Meginhugtök: Sykursýki, sálfélagslegir þættir, langtímasykurgildi.
1.tbl.2012: Tengsl þekkingar, sjálfseflingar, streitu og tegundar sykursýki við langtímasykurgildið