Þættir sem hafa áhrif á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á bráðalegudeildum
Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Helga Bragadóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, Landspítala
Skipulag, upplýsingaflæði, samskipti, forgangsröðun og verkaskipting skipta sköpum fyrir árangur meðferðar og afdrif sjúklinga á sjúkrahúsum. Vinna í hjúkrun er margslungin og mótast af þörfum sjúklinga á hverri stund. Öryggi þjónustunnar byggist á faglegri þekkingu og færni, góðum samskiptum og árangursríkri samvinnu. Áríðandi er að tryggja bestu nýtingu tiltækra úrræða og að þekking og færni hvers og eins nýtist sem best fyrir meðferð sjúklinga.
Rannsóknir sýna að hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar verða oft fyrir truflunum og töfum í vinnu sinni og standa gjarnan frammi fyrir kerfisvillum, svo sem skorti á upplýsingum, birgðum og nauðsynlegum búnaði. Enn skortir þó nánari þekkingu á umfangi truflana af þessum toga og eðli þeirra.
Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og hvaða þættir hafa áhrif á vinnunna á bráðalegudeildum. Gagna var aflað með blandaðri aðferð þar sem megindlegum gögnum var safnað í gagnagrunn handtölvu og eigindlegum gögnum safnað hjá athugendum og þátttakendum. Gögnum var safnað um vinnuna, áhrifaþætti hennar, hreyfingar og tíma. Hjúkrunarfræðingarnir vörðu mestum hluta vinnutíma síns í óbeina umönnun sjúklinga á deildinni og sjúkraliðar í beina umönnun. Vinna þátttakenda einkenndist af fjölverkavinnslu, tíðum truflunum og rofum og hreyfingu á milli staða á deildinni. Þátttakendur sinntu gjarnan vinnu sem þeir telja almennt að krefjist ekki fagkunnáttu þeirra, svo sem að svara í síma, búa upp rúm og þrífa.
Sé litið til niðurstaðna þessarar rannsóknar í ljósi fyrri rannsókna um tengsl álags, rofa og öryggis þjónustunnar er mikilvægt fyrir starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar að rýna vel í skipulag, verkferla, verkaskiptingu, samskipti og allt efnislegt umhverfi. Mikilvægt er að finna leiðir til úrbóta í skipulagi og stjórnun hjúkrunar en jafnframt er mikilvægt að styðja starfsfólk til að skoða viðhorf og verklag til að tryggja sem besta nýtingu á þekkingu og hæfni hvers og eins, sjúklingum og starfsfólki til hagsbóta.
1.tbl.2012: Þættir sem hafa áhrif á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á bráðalegudeildum