Hjukrun.is-print-version

Reynsla kvenna með geðhvörf


Jóhanna Bernharðsdóttir, Ása Björk Ásgeirsdóttir, Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, Guðrún Kristófersdóttir og Helga Jónsdóttir

Tilgangur, efniviður og aðferðir: Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar var að lýsa reynslu kvenna með geðhvörf. Úrtakið var þægindaúrtak átta kvenna á aldrinum 22 til 65
ára. Tekin voru tvö til þrjú, um það bil klukkustundarlöng hálfstöðluð, viðtöl við hvern þátttakanda yfir allt að þriggja ára tímabil. Gögnin voru þemagreind.

Niðurstöður: Eftirfarandi þemu voru greind: „Lífið í blokkinni“ – líðan í örlyndis- og þunglyndissveiflum, „Loksins greind“ – langur aðdragandi sjúkdómsgreiningar, „Að hafa meðvitund“– þróun innsæis í sjúkdómsástand, „Haldreipið“ – þrotlaus vinna að halda sér einkennalausum, „Að vera undir smásjá“ – fordómar alls staðar, „Rústir einar“ – samskipti við fjölskyldu og „Að púsla lífinu saman á ný“ – samskipti við fagfólk.

Ályktanir: Sjúkdómurinn hefur markað djúp spor í líf þátttakenda. Þrátt fyrir að konurnar hafi ekki litið á sig sem sjúklinga höfðu þær engu að síður þurft að gera umtalsverðar breytingar á daglegu lífi. Breytingarnar þjónuðu þeim tilgangi að koma í veg fyrir að einkenni kæmu fram á ný og að takast á við þau sem upp komu. Samstarf heilbrigðisstarfsmanna við fólk með geðhvörf og fjölskyldur þeirra þarf að vera markvisst og í samræmi við ólíkar þarfir á breytilegum tímabilum veikindanna. Leggja þarf áherslu á að horfast í augu við greiningu, að bæta líðan í örlyndis og þunglyndissveiflunum, að greina forboðaeinkenni, að styðja við heilsusamlega lífshætti, að upplýsa aðra um sjúkdóminn, að styrkja sjálfsmynd og sjálfstæði og vinnu gegn fordómum.

Lykilorð: Eigindleg rannsókn, geðhvörf, konur, hjúkrun, langvinn veikindi.

2.tbl.2012: Reynsla kvenna með geðhvörf

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála