Hjukrun.is-print-version

Ferlismat á nýju kynfræðsluefni fyrir unglinga


Sóley S. Bender, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Við þróun kynfræðslunámsefnis fyrir unglinga er mælt með því að þeir séu virkir þátttakendur í ferlinu og er það talið mikilvægt til þess að námsefnið nái betur til þessa aldurshóps.

Tilgangur þessarar rannsóknar var að forprófa nýtt námsefni meðal unglinga og skoða kosti og takmarkanir innleiðingar þess. Nýtt kynfræðsluefni, samtals átta kennslustundir, var forprófað í sex 8. bekkjum eins grunnskóla í Reykjavík haustið 2010. Sjö nemendur í framhaldsnámi við Háskóla Íslands sáu um kynfræðsluna auk þess sem höfundur kom að kennslunni.

Til þess að fylgjast jafnóðum með framvindu kennslunnar var gert ferlismat á innleiðingu hennar. Til grundvallar því mati voru lagðir ákveðnir matsþættir fyrir hverja kennslustund í heild sinni og fyrir hvern efnisþátt hennar en einnig skiluðu nemendur skriflegum niðurstöðum úr hópæfingum. Niðurstöður sýndu að nemendur voru áhugasamir um efnið og tóku að jafnaði virkan þátt í hópæfingunum. Kennurunum gekk almennt vel að kenna
efnið en fannst þeir þurfa meiri tíma til að vinna æfingarnar. Alls fengu 87% æfinga og allar metnar glærur mjög gott eða gott mat. Fram komu margar góðar hugmyndir frá nemendum við úrvinnslu hópæfinga og það sýndi góðan skilning þeirra á efninu.

Í lok kennslunnar höfðu nemendur náð heildrænum skilningi á kynheilbrigði. Hópastarf er kennslufræðilega krefjandi. Þjálfun í hópastarfi er því mikilvægur undirbúningur undir þessa kennslu. Námsefnið er álitlegt til frekari prufukennslu í nokkrum skólum eftir
að búið er að taka mið af athugasemdum þessarar forprófunar.

Lykilorð: Kynfræðsla, unglingar, ferlismat.

4.tbl.2012: Ferlismat á nýju kynfræðsluefni fyrir unglinga

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála