Hjukrun.is-print-version

Könnun á gildum ólíkra tengslagerða í rómantískum samböndum


Dagmar Rósa Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Sóley S. Bender, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands



Grundvallarþáttur mannlegrar tilveru er að mynda við aðra einstaklinga góð sambönd sem byggjast á trausti. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna samband tengslagerða og tengslavídda fullorðinna einstaklinga við sjálfsvirðingu og gæði í rómantískum samböndum, en það hefur ekki áður verið gert á Íslandi. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegri rannsókn (International Sexuality Description Project, ISDP).

Gerð var könnun með þverskurðarsniði og var úrtakið þægindaúrtak 423 kvenna og karla á aldrinum 19-36 ára sem stunduðu nám við Háskóla Íslands á vorönn árið 2005. Rannsóknin byggðist á fimm spurningalistum sem könnuðu meðal annars tengsl, sjálfsvirðingu og gæði í rómantískum samböndum. Niðurstöðurnar sýndu að traust tengslagerð einstaklinga tengdist á jákvæðan hátt gæðum í rómantískum samböndum þeirra hvað varðar ánægju og ástríðu. Einnig kom fram að óttablandin tengslagerð og kvíði í tengslum tengdust minni sjálfsvirðingu þeirra og minni gæðum í rómantískum samböndum varðandi flesta þætti sem mældir voru. Niðurstöðurnar staðfestu þá andstæðu póla traustrar tengslagerðar annars vegar og óttablandinnar tengslagerðar hins vegar sem fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á og andstæð tengsl þeirra við gæði í rómantískum samböndum.

Lykilorð: Tengslagerðir, tengslavíddir, fullorðnir, sjálfsvirðing, gæði í rómantískum samböndum.

1.tbl.2013: Könnun á gildum ólíkra tengslagerða í rómantískum samböndum

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála