Viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum - Að hafa alla þræði í hendi sér
Jónbjörg Sigurjónsdóttir, Helga Jónsdóttir, Birna G. Flygenring og Helga Bragadóttir
Til að tryggja þau gæði, sem eru grundvallaratriði fyrir vellíðan heimilismanna á hjúkrunarheimilum, er nauðsynlegt að greina framlag hjúkrunarfræðinga til hjúkrunar aldraðra.
Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar var að varpa ljósi á viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum og lýsa því í hverju störf þeirra eru fólgin. Tekin voru fjögur rýnihópaviðtöl við samtals 22 hjúkrunarfræðinga frá fimm hjúkrunarheimilum. Notaður var hálfstaðlaður viðtalsrammi.
Viðtölin voru þemagreind. Niðurstöður sýndu fjölþætt og flókin viðfangsefni hjúkrunarfræðinga. Yfirþemað var að hafa alla þræði starfseminnar í hendi sér. Undirþemun voru árvekni, að hafa yfirsýn og vera vakandi yfir öllu og að vera greinandi og sjá hlutina í öðru ljósi. Á grundvelli þess fjárhagslega umhverfis, sem hjúkrunarfræðingar starfa nú í, eru þeir hins vegar í ákveðnu öngstræti við að tryggja gæði hjúkrunarinnar. Markviss stjórnun
og fagleg forysta skiptir þá sköpum fyrir gæði hjúkrunar á hjúkrunarheimilum. Styrkur hjúkrunarfræðinga liggur í þekkingu þeirra og hinni heildrænu nálgun sem þeir beita.
Niðurstöður þessarar rannsóknar geta nýst sem grunnur fyrir frekari rannsóknir á viðfangsefninu auk þess að vera mikilvægt framlag þekkingar til hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarstjórnenda og ráðamanna öldrunarmála.
Lykilorð: hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarheimili, rýnihópar, öldrunarhjúkrun.
1.tbl.2013: Viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum – Að hafa alla þræði í hendi sér