Hjukrun.is-print-version

Heilsa og líðan nýraþega á Íslandi


Hildigunnur Friðjónsdóttir, Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Landspítala
Margrét Birna Andrésdóttir, Landspítala
Hildur Einarsdóttir, Landspítala
Arna Hauksdóttir, Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands



Tilgangur: Að kanna líðan, heilsu og lífsgæði nýraígræðslu­ þega. Stuðningur og upplýsingagjöf til nýraþega voru könnuð sérstaklega og hvort munur væri á líðan nýraþega sem fengu nýra frá lifandi eða látnum gjafa. Þátttakendur og aðferð: Rannsóknin var megindleg og var spurningalisti sendur til allra nýraþega sem fengið hafa grætt í sig nýra frá lifandi eða látnum gjafa á Íslandi, voru eldri en 18 ára á tíma rannsóknar og gátu tjáð sig á íslenskri tungu (N=96). Annars vegar var í spurningalistanum að finna spurningar um bakgrunn, sjúkdómsferlið og líðan nýraþegans og hins vegar lífsgæðaspurningalistann SF-36v² ™.

Niðurstöður: Alls svöruðu 73 einstaklingar spurningalistanum (76%). Þátttakendur voru á aldrinum 23 til 78 ára og 70% höfðu þegið nýra frá lifandi gjafa. Nýraþegar, sem fengu nýra
frá látnum gjafa, höfðu verið lengur í skilun fyrir ígræðslu (p<0,001). Andleg heilsa nýraþega (samkvæmt SF-36v²) var sambærileg meðaltali samanburðarþýðis (47,28). Líkamleg líðan mældist undir meðaltali samanburðarþýðis (43,56). Ekki var marktækur munur á líðan, heilsu eða lífsgæðum nýraþega eftir því hvort þeir höfðu fengið nýra frá látnum eða lifandi gjafa.

Nýraþegar, sem fengu nýra frá lifandi gjafa, höfðu fengið meiri stuðning frá heilbrigðisstarfsfólki. Átján prósent nýraþega, sem fengu nýra frá lifandi gjafa, og 46% nýraþega, sem fengu nýra frá látnum gjafa, töldu að sig hefði vantað fræðsluefni fyrir
ígræðslu frá hjúkrunarfræðing.

Ályktanir: Álykta má að verri líkamleg líðan skýrist meðal annars af því að skilunarmeðferð, sem flestir nýraþegar þurfa fyrir aðgerð, er erfið og getur skert athafnafrelsi, og ónæmisbælandi lyfjameðferð eftir aðgerð getur haft áhrif á heilsu og líðan nýraþeganna. Auka þarf fræðslu og stuðning til nýraþega og þá sérlega þeirra sem fá nýra frá látnum gjafa.

Lykilorð: Nýraþegar, nýraígræðsla, lífsgæði, heilsa, nýragjafar 

2.tbl.2013: Heilsa og líðan nýraþega á Íslandi

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála