Væntingar til fræðslu og heilsutengd lífsgæði sjúklinga sem fara í gerviliðaaðgerð
Árún K. Sigurðardóttir, Háskólanum á Akureyri
Gunnhildur H. Gunnlaugsdóttir, Sjúkrahúsinu á Akureyri
Brynja Ingadóttir, skurðlækningasviði Landspítala og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Gerviliðaaðgerðir á hné og mjöðm eru algeng og árangursrík meðferð við einkennum slitgigtar og geta bætt heilsutengd lífsgæði sjúklinga. Sjúklingafræðsla gegnir veigamiklu hlutverki í að hjálpa sjúklingum að gera sér raunhæfar vonir um árangur aðgerðarinnar og aðgerðarferlisins og undirbúa þá fyrir þá sjálfsumönnun sem er nauðsynleg eftir aðgerð. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvernig væntingum sjúklinga, sem fara í gerviliðaaðgerð á mjöðm og hné, til fræðslu er sinnt á íslenskum sjúkrahúsum og tengslum þess við heilsutengd lífsgæði.
Aðferðin var framvirk, lýsandi samanburðarrannsókn með þremur mælipunktum: tími 1 fyrir aðgerð og fyrir formlega fræðslu um aðgerðina; tími 2 við útskrift eftir aðgerð á sjúkrahúsinu, eftir formlega útskriftarfræðslu; tími 3 6-7 mánuðum eftir aðgerð. Úrtakið var sjúklingar sem fóru í skipulagðar gerviliðaaðgerðir á mjöðm og hné frá janúar til nóvember 2010, á þeim þremur sjúkrahúsum á Íslandi sem framkvæma gerviliðaaðgerðir. Þrjú matstæki voru notuð: Hospital Patients’ Knowledge Expectations (HPKE), Hospital Patients’ Received Knowledge (HPRK), sem meta væntingar sjúklinga til fræðslu og fengna fræðslu, og EQ-5D sem metur heilsutengd lífsgæði.
Á tíma 1 svöruðu 279 sjúklingar, á tíma 2 svöruðu 220 og á tíma 3 svöruðu 210 spurningalistunum. Meðalaldur var 65,4 ár og aldursbilið frá 37 til 87 ára. Meðallegutími var 6,6 dagar.
Þátttakendur höfðu miklar væntingar til fræðslu en þeir töldu sig fá minni fræðslu en þeir væntu og jókst sá munur frá tíma 2 til tíma 3. Heilsutengd lífsgæði batna frá því fyrir aðgerð til 6-7 mánaða eftir aðgerð. Eftir því sem væntingar um fræðslu voru betur uppfylltar því betra var heilsufar metið á tíma 3 og var það samband marktækt. Það er ályktað að þörf sé á að endurskoða mat á fræðsluþörfum og innihaldi sjúklingafræðslu
sjúklinga sem fara í gerviliðaaðgerðir á Íslandi.
Lykilorð: Heilsutengd lífsgæði, sjúklingafræðsla, skurðaðgerð, væntingar
3. tbl. 2013: Væntingar til fræðslu og heilsutengd lífsgæði sjúklinga sem fara í gerviliðaaðgerð