Hjukrun.is-print-version

Viðhorf hjúkrunarfræðinga á íslenskum hjúkrunarheimilum til líknarmeðferðar og þekking fleirra á henni


Heiðdís Harpa Kristjánsdóttir, öldrunarheimilinu Hlíð, Akureyri
Elísabet Hjörleifsdóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri og Heimahlynningunni á Akureyri



Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf hjúkrunarfræðinga á íslenskum hjúkrunarheimilum til líknarmeðferðar og þekkingu þeirra á henni með skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem viðmið. Einnig var tilgangurinn að skoða skipulag og framkvæmd líknarmeðferðar sem og fræðsluþörf og hlutverk hjúkrunarfræðinga á þeim hjúkrunarheimilum sem tóku þátt í rannsókninni. Níu hjúkrunarfræðingar á tveimur hjúkrunarheimilum og einni hjúkrunardeild fyrir
aldraða á sjúkrahúsi voru valdir til að taka þátt í rannsókninni.

Allir þátttakendur gáfu skriflegt samþykki fyrir þátttöku sinni, enginn þeirra óskaði eftir því að draga sig út úr rannsókninni. Níu viðtöl með hálfstöðluðum spurningum voru tekin og gögnin voru þáttagreind.

Niðurstöður: Yfirþema sem endurspeglaði viðhorf þátttakenda til líknarmeðferðar var vellíðan og góð verkja- og einkennameðferð á síðustu dögum lífs í notalegu umhverfi.
Þrjú meginþemu komu í ljós, skilningur, lífslok og áhrifaþættir á líknarmeðferð, og hvert þema flokkast í nokkur undirþemu. Niðurstöður gáfu vísbendingar um að skortur væri á þekkingu á viðurkenndum viðmiðunum um líknarmeðferð á þeim hjúkrunarheimilunum sem tóku þátt.

Ályktanir:
 Draga má þá ályktun af niðurstöðum að mikilvægt sé að stuðla að því að aldraðir íbúar á hjúkrunarheimilum fái viðeigandi líknarmeðferð sem verði beitt um leið og staðfest er að þeir hafa sjúkdóm sem þarfnast slíkrar meðferðar. Til þess er nauðsynlegt að koma á skipulegri fræðslu um líknarmeðferð og hvenær henni skuli beitt sem heildrænni meðferð samhliða annarri meðferð.

Lykilorð:
 Hjúkrunarheimili, aldraðir, líknarmeðferð, þekking, fræðsla, viðhorf, hjúkrun.

4.tbl. 2013: Viðhorf hjúkrunarfræðinga á íslenskum hjúkrunarheimilum til líknarmeðferðar og þekking fleirra á henni

Ritrýnd grein

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála