Erum við tilbúin þegar á reynir?
Hulda Ringsted, Sjúkrahúsinu á Akureyri
Árún K. Sigurðardóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
Bakgrunnur: Hjúkrunarfræðingar og læknar gegna mikilvægu hlutverki í kjölfar hamfara og stórslysa en geta þó verið illa undirbúnir til slíkra starfa. Reynslubundin þekking er lítil og tækifæri til náms og þjálfunar því nauðsynleg. Íslenskar rannsóknir um efnið eru fáar ef nokkrar og því er mikilvægt að byggja upp fræðilegan grunn þar sem horft er til íslenskra aðstæðna.
Tilgangur rannsóknarinnar: Að kanna viðhorf hjúkrunarfræðinga og lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri til viðbragðsgetu stofnunarinnar í kjölfar stórslysa og hamfara, að lýsa sýn þeirra á eigið starfshlutverk og kanna viðhorf þeirra til teymisvinnu, þjálfunar og hæfni til starfa í kjölfar stórslysa og hamfara.
Rannsóknaraðferð: Notuð var eigindleg aðferð með rýnihópum. Þátttakendum (n=17) var skipt í fjóra 3-5 manna rýnihópa sem valdir voru með tilgangsúrtaki úr hópi hjúkrunarfræðinga og lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Viðtölin voru greind með eigindlegri innihaldsgreiningu.
Helstu niðurstöður: Hjúkrunarfræðingar og læknar Sjúkrahússins á Akureyri hafa litla reynslu af störfum í kjölfar stórslysa og hamfara og æfingar eru fátíðar. Starfshlutverk eru ekki alltaf skýr en starfsmenn geta þurft að sinna störfum sem þeir gegna ekki venjulega. Skilgreina þarf betur hlutverk stjórnenda og þjálfa starfsmenn í það hlutverk. Hæfni til daglegra starfa nýtist til starfa í stórslysum og hamförum en nauðsynlegt er að bæta hæfni í stjórnun, samvinnu og til að vinna sérhæfð verk. Reglulegar æfingar eru mikilvægar, gjarnan í formi stórslysa- eða verkþáttaæfinga.
Ályktanir: Lítil sjúkrahús þurfa að taka tillit til stærðar sinnar við gerð viðbragðsáætlana og gera í þeim greinarmun á eðli og alvarleika atburða. Hlutverk starfsmanna þarf að skýra og skilgreina og þá þarf að þjálfa. Góð almenn starfshæfni nýtist við störf í kjölfar stórslysa og hamfara en sértæka hæfni þarf að þjálfa.
Þjálfun þarf að vera regluleg og hana má efla með því að tengja hana inn í daglegt starf. Sérstaka áherslu ætti að leggja á þjálfun stjórnenda sem og á þjálfun í teymisvinnu.
Lykilorð: Stórslys, hamfarir, menntun, starfshæfni, starfshlutverk.
3.tbl. 2014: Erum við tilbúin þegar á reynir? Viðbrögð í kjölfar hamfara og stórslysa