Hjukrun.is-print-version

Fjölbreytt og lærdómsríkt að hjúkra á Grænlandi

Ljósmynd: Ljósm. Kristinn Ingvarsson
Helga Ólafs

Ingibjörg Hrefna Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur er nýkomin heim eftir að hafa unnið við hjúkrun á Grænlandi undanfarin ár með hléum. Starfið þar var fjölbreytt og í raun sinnti hún nánast öllu sem hrjáð getur fólk í litlu bæjarfélagi. Hún segir sjúkrahússtörf almennt ekki vera fjölskyldu- eða mannvæn vegna álagsins sem þar ríkir.

„Ég hafði alltaf verið spennt fyrir frelsinu sem felst í því að vera hjúkrunarfræðingur – frelsinu að geta unnið nánast hvar sem er og hvenær sem er sólarhringsins. Mér þótti spennandi að geta farið hvert sem er í heiminum og unnið við fagið, og ekki síst til staða sem eru ekki í alfararleið,“ segir hún.

Ingibjörg lauk hjúkrunarnámi í Kaupmannahöfn sumarið 2005. „Ég hafði alltaf verið spennt fyrir frelsinu sem felst í því að vera hjúkrunarfræðingur – frelsinu að geta unnið nánast hvar sem er og hvenær sem er sólarhringsins. Mér þótti spennandi að geta farið hvert sem er í heiminum og unnið við fagið, og ekki síst til staða sem eru ekki í alfararleið,“ segir hún. Ingibjörg vann með námi á lokaðri geðdeild á Amagerspítala en í starfsnáminu beindist áhuginn að blóðlækningum og vann hún á blóðlækningadeild Ríkisspítalans að loknu námi, eða fram til ársins 2009.

 

Tók á móti börnum og sat við dánarbeð fólks

Árið 2009 flutti hún síðan til Sisimiut á Grænlandi og fór að vinna á héraðssjúkrahúsinu þar en það skiptist annars vegar í heilsugæslu og hins vegar í legudeild. Það er óhætt að segja að starfið hafi verið fjölbreytt en hún hjúkraði sjúklingum með lungnabólgu og hálsbólgu, botnlangabólgu, sjúklingum með beinbrot, börnum með astma, fólki í fráhvörfum og geðsjúkum. Þá tók hún jafnframt á móti börnum, auk þess að sitja við dánarbeð fólks. „Í raun og veru sinnti ég nánast öllu sem hrjáð getur einstaklinga í litlu bæjarfélagi,“ segir hún.

Í desember 2012 flutti Ingibjörg til Íslands með fjölskyldu sinni og fór þá aftur að vinna við blóðlækningar á deild 11G og á göngudeild blóð- og krabbameinssjúkra 11B á Landspítalanum. En sumarið 2015 lá leiðin enn og aftur til Grænlands og réð hún sig á heilsugæsluna. Í október sama ár fékk hún deildarstjórastöðu og byggði þar upp hjúkrunarstarf í tengslum við krabbameinssjúka með aukinni áherslu á fjölskylduhjúkrun og líknandi meðferð. 

Í sumar sneri Ingibjörg aftur til Íslands og hóf að vinna við rannsóknina „Blóðskimun til bjargar“ sem miðar að því að kanna hugsanlegan ávinning af því að skima eftir mergæxli. Hún segir það mikinn kost að vinna eingöngu dagvinnu. „Mér finnst það verulega óaðlaðandi að vinna á sjúkrahúsi vegna álagsins sem því fylgir. Það er á engan hátt fjölskyldu- eða mannvænt að vinna undir þeirri pressu sem er á sjúkrahúsum hér á landi eða víðast hvar í heiminum.

Pistlar og viðtöl

Hjúkrun

Hjúkrunarfræðingurinn

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála