Hjukrun.is-print-version

Hlaut virt nýliðaverðlaun í Bandaríkjunum

Helga Ólafs

Áhugi Ragnhildar I. Bjarnadóttur hjúkrunarfræðings á heilsuvernd og forvörnum varð til þess að hún ákvað að fara til Bandaríkjanna í framhaldsnám í lýðheilsufræði. Að loknu doktorsnámi stundar hún nú rannsóknir á upplýsingatækni í hjúkrun við Háskólann í Flórída og hlaut nýlega nýliðaverðlaun (New Investigator Award) frá rannsóknastofnuninni Academy Health Interprofessional Research Group on Nursing Issues og var ein af sex fræðimönnum sem valin var úr 90 manna hópi umsækjenda í verkefni á vegum Bandarísku hjúkrunarakademíunnar (American Academy of Nursing), sem er meðal þeirra virtustu á sviði hjúkrunarfræði í heiminum, í samstarfi við þekkta miðstöð hjúkrunar (Jonas Center for Nursing and Veteran Affairs). Valinu fylgir titillinn American Academy of Nursing Jonas Policy Scholar. Með þessu verkefni er leitast við að veita efnilegum og upprennandi fræðimönnum viðurkenningu og tækifæri til að vinna með virtum sérfræðingum að stefnumótun í heilbrigðis-, mennta- og vísindamálum.

Kynheilbrigðisfræðsla og forvarnir fyrir unglinga réð úrslitum

Ragnhildur og eiginmaður hennar fluttu til New York eftir að hún fékk inngöngu í meistaranám í lýðheilsu við Columbia Mailman-lýðheilsuskólann í New York-borg en það sem réð úrslitum var að þeir buðu upp á sérsvið um kynheilbrigðisfræðslu og forvarnir fyrir unglinga. Að því loknu hóf hún doktorsnám við Columbia-háskóla í New York-borg í upplýsingatækni í hjúkrun með sérstakri áherslu á gagnasöfnun í hjúkrun og hvernig gögnin geta nýst til að bæta öryggi sjúklinga og gæði hjúkrunar. Doktorsritgerðin fjallaði um hvernig hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun ræða við sjúklinga sína um og safna gögnum um kynhneigð og kynverund. Hún segir það mikilvægt til að geta veitt sjúklingamiðaða þjónustu og fylgst með gæðum og jafnræði í þjónustunni. Þá rannsakaði hún einnig notkun rafrænna sjúkraskráa á hjúkrunarheimilum og áhrifum á gæðaniðurstöður.

Leiðin lá svo til Flórída þar sem Ragnhildur vinnur nú að áframhaldandi rannsóknum við að nota textanám og aðrar gagnaskoðunaraðferðir til að finna mikilvægar upplýsingar í stórum gagnasöfnum af hjúkrunarnótum. Þær upplýsingar nýtast við að bæta gæði hjúkrunar í gegnum stuðningskerfi við klínískar ákvarðanir. Ragnhildi var nýlega boðið að sækja um fasta stöðu sem prófessor við Háskólann í Flórída. Það mun fela í sér áframhaldandi kennslu og rannsóknir og er gríðarspennandi að sögn hennar.

Nánar er rætt við Ragnhildi í næsta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga sem kemur út síðar í nóvember.

Fagleg málefni

Forvarnir og fræðsla

Heilbrigðiskerfi

Stjórnvöld

Viðtöl

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála