Nýr vefur félagsins
Nýr og endurbættur vefur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er nú kominn í loftið og leysir af hólmi eldri vef félagins. Fyrir um 10 árum þegar gamli vefurinn var tekinn í notkun markaði hann stór tímamót hjá okkur en er í dag barn síns tíma og hefur þjónað sínum tilgangi. Nýi vefurinn tekur mið af nýjustu kröfum um útlit og notendavænleika og lagar sig að ólíkum skjástærðum. Við hönnunina var haft að leiðarljósi að bæta aðgengi að bæði þjónustu og upplýsingum til hjúkrunarfræðinga og annarra notenda.
Mikilvægur vettvangur fyrir félagsmenn og aðra
Á tímum mikillar notkunar samfélagsmiðla, sem eru orðnir fastur hluti af daglegu lífi fólks, er mikilvægt að ásýnd félagsins fylgi nútímalegum kröfum. Með tilkomu nýja vefsins er komin öflugri vettvangur til samskipta við félagsmenn og alla þá sem áhuga hafa á hjúkrun og hagsmuna- og baráttumálum stéttarinnar. Vefurinn er einn af fyrstu viðkomustöðunum hjá þeim sem leita upplýsinga um allt sem viðkemur hjúkrun. Á vefnum verða birtar fréttir, greinar, pistlar, viðtöl, fræðilegt efni, tölfræðilegar upplýsingar, auglýstir viðburðir og ýmis fróðleikur er viðkemur hjúkrun, auk umfjöllunar um mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Jafnframt verður enski hluti vefsins styrktur frekar með viðeigandi upplýsingum fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga og aðra gesti vefsins.
Eins og flestum er kunnugt vantar hjúkrunarfræðinga til starfa og er því þessi vettvangur ekki síður mikilvægur til að ná til ungs fólks sem hyggur á háskólanám, eða þeirra sem áhuga hafa á málefnum stéttarinnar. Í því samhengi bendi ég sérstaklega á aðgengilegar upplýsingar um fagdeildir félagsins og fjölbreytta starfsemi þeirra.
Vonast ég til að vefurinn eigi eftir að gagnast öllum notendum vel. Allar ábendingar vel þegnar á hjukrun@hjukrun.is.
Til hamingju hjúkrunarfræðingar!