Hjukrun.is-print-version

Breyttur tíðarandi meðal ungra hjúkrunarfræðinga

3. tbl. 2017
Guðbjörg Pálsdóttir
Ég vil byrja á því að þakka traustið og þann stuðning sem þið hafið sýnt mér með því að trúa mér fyrir starfi formanns félagsins næstu tvö árin. Ákvörðunin um framboð var ekki sjálfsögð en ég er mjög ánægð yfir því að hafa tekið þessa ákvörðun og fengið brautargengi til að gegna formennsku í félaginu. Ég finn það daglega hversu gefandi og gott það er að vinna að málefnum hjúkrunarfræðinga þó vinnan sé ekki alltaf dans á rósum frekar en önnur vinna hjúkrunarfræðinga. Áralöng reynsla mín innan heilbrigðis- og menntakerfisins hefur nýst mér vel í starfinu sem og þau tengsl við fólk og stofnanir sem myndast hafa í áranna rás, , jafnt innan stéttar sem utan. Ég mun leggja mig fram um að gera mitt besta til að tryggja hagsmuni hjúkrunarfræðinga og vinna ötullega að eflingu hjúkrunar.

Kraftur og faglegur metnaður

Ráðstefnan Hjúkrun 2017 var haldin dagana 28.-29. september undir yfirskriftinni Fram í sviðsljósið. Um 230 manns voru skráðir á ráðstefnuna og endurspeglar þessi góða þátttaka áhuga hjúkrunarfræðinga á málefnum hjúkrunar. Dagskráin var mjög fjölbreytt og mæltust vinnustofurnar sérstaklega vel fyrir hjá þátttakendum. Það var gott að skynja þann styrk, þá samstöðu og ekki síst þá gleði sem einkenndi alla á ráðstefnunni. Það var góð tilfinning enda nauðsynlegt að koma saman með kollegum, eiga góðar stundir og ná að lyfta sér aðeins upp úr amstri dagsins.

Mikil gróska er í faglegu starfi hjúkrunarfræðinga og voru t.d. 3 nýjar fagdeildir og 8 nýjar landsvæðadeildir stofnaðar á aðalfundinum í vor. 

Mikil gróska er í faglegu starfi hjúkrunarfræðinga og voru t.d. 3 nýjar fagdeildir og 8 nýjar landsvæðadeildir stofnaðar á aðalfundinum í vor. Deildirnar eru því orðnar 32 talsins og endurspeglar það vel þann kraft og faglega metnað sem býr meðal hjúkrunarfræðinga. Jafnframt er nýútkomin skýrsla sem gerð var í samvinnu við fagdeild geðhjúkrunarfræðinga og í tengslum við stefnu og aðgerðaáætlun velferðarráðuneytisins í geðheilbrigðismálum. Þar er kynnt hugsanlegt framlag geðhjúkrunarfræðinga og geðhjúkrunar til eflingar geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur skýrsluna en hún er gott dæmi um hvernig Fíh og hjúkrunarfræðingar geta tekið þátt í mótun og skipulagningu heilbrigðisþjónustunnar og látið sig málefni skjólstæðinganna varða.

Þrýst á endurskoðun samninga

Miðlægur kjarasamningur hjúkrunarfræðinga við ríkið er fastur í gerðardómi til ársins 2019 og ljóst að hann verður einungis endurskoðaður ef aðilar á vinnumarkaði segja upp sínum kjarasamningum. Stofnanasamningar eru þeir samningar sem ráða mestu um launaröðun hjúkrunarfræðinga og flestir þeirra eru ekki í takti við starfsemi stofnana. Landspítali er í forystusveitinni þegar kemur að breytingum á stofnanasamningum og hefur félagið unnið að því að fá núverandi stofnanasamning ræddan. Lagðar hafa verið fram tillögur um breytingar á launasetningu, vinnutíma og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og eru þær tillögur í skoðun innan spítalans. Félagið mun halda áfram að þrýsta á um endurskoðun samninganna. Vonir standa til að einhverjar breytingar verði gerðar á næstu mánuðum og munu félagsmenn verða upplýstir um stöðu mála.

Greinilegt er að hér er á ferð sterkur árgangur sem lætur að sér kveða eins og raun bar vitni síðastliðið vor þegar þeir mótmæltu launakjörum Landspítala með því að ráða sig ekki þangað. 

Sterkir og öflugir árgangar hjúkrunarfræðinema

Í byrjun október var haldin móttaka fyrir nýja félagsmenn Fíh sem brautskráðir voru 2017 og var þeim afhent félagsnælan. Greinilegt er að hér er á ferð sterkur árgangur sem lætur að sér kveða eins og raun bar vitni síðastliðið vor þegar þeir mótmæltu launakjörum Landspítala með því að ráða sig ekki þangað. Það hefur komið berlega í ljós að yngri kynslóðirnar forgangsraða og hugsa öðruvísi en þær eldri þegar kemur að vali á starfsvettvangi. Við finnum það ekki síst á þeim fundum sem við eigum við nemendur. Þetta finnum við, starfsfólk FÍH, líka á þeim fundum með nemendum í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri sem félagið stendur fyrir. Það er mikilvægt að ræða við hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar, heyra hvað þeir hugsa og hver framtíðarsýn þeirra er. Við finnum glöggt fyrir þessum breytta tíðaranda þar sem forgangsröðunin er önnur en áður var og launakjör og starfsumhverfi vega þungt. Mikill baráttuandi er í þessum hópi og heyrast nú þegar sambærilegar raddir hjá núverandi 4. árs hjúkrunarnemendum og heyrðust í fyrra. Ég tel því ljóst að atvinnurekendur þurfi að breyta afstöðu sinni, hlusta betur á ungu hjúkrunarfræðingana og bregðast öðruvísi við en gert hefur verið fram að þessu ef hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar eiga að fást til að starfa við hjúkrun.

Langvarandi álag á hjúkrunarfræðingum

Undanfarinn mánuð höfum við haldið áfram fundaferðinni okkar „Við hlustum á þig“ og nú var komið að því að heyra í hjúkrunarfræðingum sem vinna á höfuðborgarsvæðinu, t.d. hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og Reykjavíkurborg. Á heildina litið er óhætt að segja að hljóðið er þungt í hjúkrunarfræðingum. Mikil óánægja er með t.d. með hversu illa gengur að endurnýja stofnanasamningana og hjúkrunarfræðingar kvarta undan langvarandi álagi í starfi. Kastljósið beindist að hjúkrunarfræðingum í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar Mönnun, menntun og starfsumhverfi. Í aðdraganda nýliðinna kosninga virtist sem stjórnmálamönnunum væri ljós hve staðan væri alvarleg og því spennandi að sjá hvað gerist í náinni framtíð. Fram að því höldum við áfram baráttunni fyrir hjúkrunarfræðinga.

Ég óska ykkur gleðilegrar hátíðar og blessunarríks árs. Til ykkar sem standið vaktirnar yfir hátíðarnar sendi ég góðar kveðjur.

Félagið

Heilbrigðiskerfi

Kjör

Stjórnvöld

Vinnumarkaður

Pistlar

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála