Gleðilega páska
Þann 28. febrúar síðastliðinn hélt Fíh málþing um starfsumhverfi, álag í starfi og laun og kjör hjúkrunarfræðinga á hótel Natura. Yfir 260 hjúkrunarfræðingar sóttu málþingið auk þess sem rúmlega 70 fylgdust með í streymi á facebook síðu félagsins. Þeir sem ekki höfðu tækifæri til að mæta eða fylgjast með því geta ennþá séð það á facebooksíðu félagsins. Á málþinginu kynnti ég helstu niðurstöður könnunar sem gerð var í nóvember meðal starfandi félagsmanna um viðhorf hjúkrunarfræðinga til starfsins, starfsánægju, vinnuumhverfi, aðbúnað og líðan í starfi.
Helstu niðurstöður sýna að 76% hjúkrunarfræðinganna sem þátt tóku telja starfið hafa staðist væntingar, 75% eru ánægðir í starfi en á sama tíma íhuga 75% að skipta um starfsvettvang og 27% íhuga að hætta að starfa sem hjúkrunarfræðingur. Þessar niðurstöður eru sláandi og þess verðar að skoða betur því auðvitað er ánægjulegt að hjúkrunarfræðingar séu ánægðir með starfið sitt en umhugsunarvert að það séu einhverjir áhrifaþættir sem gera það að verkum að hjúkrunarfræðingarnir íhuga samt sem áður önnur störf.
Sem dæmi um frekari niðurstöður má nefna að 43% telja atvinnuhúsnæði óviðunandi og 64% álagið í starfi vera mjög/of mikið. Þá eru 70% hjúkrunarfræðinganna óánægðir með launakjörin. Greinilegt er að meiri ánægja er með dagvinnu en vaktavinnu og svo virðist sem það sé meiri óánægja almennt meðal yngri hjúkrunarfræðinga en þeirra eldri. Að mínu mati styður þetta það sem áður hefur komið fram, m.a. það að yngri kynslóð hjúkrunarfræðinga er með skýrari mörk gagnvart vinnunni og telur hana vera launaða vinnu en ekki lífsstíl.
Í raun get ég sagt að mikið af þessum niðurstöðum vitum við en nú eru þær staðfestar með óyggjandi hætti og er óhætt að segja að niðurstöðurnar endurspegli vel viðhorf stéttarinnar enda 74,2% þátttaka í könnuninni. Félagið mun nýta þessar niðurstöður vel, ásamt skýrslunni um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga og skýrslu Ríkisendurskoðunar, í baráttunni fyrir bættum kjörum félagsmanna.
Fíh hefur sent frá sér stuðningsyfirlýsingu við Ljósmæðrafélag Íslands vegna kjarabaráttu ljósmæðra en flestar ljósmæður eru einnig hjúkrunarfræðingar, auk þess að vera kvennastétt. Mikilvægt er að ríkisstjórnin og samninganefnd ríkisins gangi til samninga við þær sem fyrst. Okkar gerðadómur losnar í mars 2019 og verður þá komið að okkur!
Jafnframt hefur Fíh í samvinnu við nokkrar fagdeildir félagsins sent frá sér umsagnir um ýmsar þingsályktunartillögur og skiptir máli að alþingismenn sjái og finni að hjúkrunarfræðingar láta sig heilbrigðismálefnin varða og hafi skoðun. Þar má aldrei slaka á. Á vef félagsins má t.d. sjá nýjustu umsagnirnar um bann við umskurði drengja, rafrettur, greiðsluþátttöku sjúklinga og ræktun og notkun lyfjahamps.
Ég vil hvetja ykkur til að mæta á aðalfund félagsins fimmtudaginn 24. maí næstkomandi kl. 19:00 á Grand hótel. Hann verður með svipuðu sniði og í fyrra og mæltist vel fyrir meðal félagsmanna. Að þessu sinni fáum við m.a. erindi frá fulltrúum hjúkrunarnemenda í Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri en eitt af því sem ég hef á stefnuskránni er aukið samstarf við hjúkrunarnemendur, enda eru þeir hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar. Verður áhugavert að heyra hvað þeir hafa að segja. Einnig hefur kjörnefnd auglýst eftir framboðum í stjórn félagsins og ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga fyrir kjörtímabilið 2018 – 2020 og rennur framboðsfresturinn úr 17. apríl. Ég vil hvetja hjúkrunarfræðinga til að bjóða sig fram, taka þátt í störfum félagsins og hafa þannig áhrif. Á þann hátt geta félagsmenn stuðlað að breytingum og gert félagið ennþá öflugra en nú er.
Framundan er lengsta frí ársins hjá landsmönnum. Margir hjúkrunarfræðingar standa vaktina yfir páskana og óska ég þeim sérstaklega góðra vakta. Hafið það sem best yfir páskahátíðina og vonandi náið að njóta þeirra með fjölskyldu og vinum.
Gleðilega páska.