Hjartabilaðir eru gefandi, skemmtilegur og þakklátur hópur fólks
Ljósmynd: Ljósmynd: Þorkell Þorkelsson
Fyrstu kynni Guðbjargar Jónu Guðlaugsdóttur af hjúkrun voru í gegnum móður hennar sem lét sig dreyma um að verða hjúkrunarkona. Draumur hennar varð því miður ekki að veruleika en þrátt fyrir það ólst Guðbjörg upp við það að horfa á hana sinna og hjúkra þeim ástvinum sem á þurftu að halda. „Þetta hafði mikil áhrif á mig og 16 ára gömul fékk ég vinnu á Sjúkrahúsinu á Siglufirði þar sem ég er fædd og uppalin, og þar vann ég með yndislegum konum sem lögðu grunninn að framtíðarstarfi mínu. Auk þess er stóra systir mín, Guðný Sigríður Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og horfði litla systir alltaf á hana með aðdáun þegar hún var að vinna við sína hjúkrun.“
Magnað að vinna á hjartadeild
Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir, sem er 49 ára, hefur nú unnið sem hjúkrunarfræðingur í tæp 23 ár, en hún útskrifaðist úr hjúkrun við Háskóla Íslands 1996. Guðbjörg er gift Nils Gústavssyni og eiga þau dæturnar Margréti og Andreu, og soninn Gústav. Hún stefndi lengst af því að hjúkra öldruðum en eftir annað árið í hjúkrun réð hún sig í sumarvinnu á bæklunardeildinni á gamla Borgarspítalanum og þá tók hún aðra stefnu. „Einn morguninn var ég í miðjum klíðum að mæla lífsmörk hjá manni sem var á leið í aðgerð þegar hann fer í hjartastopp fyrir framan nefið á mér. Ég varð hálf stjörf - hafði aldrei upplifað þetta. Ég var svo heppin að með mér á stofunni var sjúkraliðinn og reynsluboltinn Ragna Ágústsdóttir sem ég var búin að læra mikið af þetta sumar og byrjuðum við strax að hnoða og blása meðan einhverjir aðrir kölluðu á endurlífgunarteymið. Við þessa lífsreynslu ákvað ég innra með mér að hjartadeild yrði deildin sem ég myndi byrja að vinna á að námi loknu og hóf ég því störf á hjartadeildinni við Hringbraut strax eftir útskrift. Hjartadeildin var algjörlega mögnuð deild að vinna á, þvílíkt samstarfsfólk og fyrirmyndir í hverju horni.“Áhugi á sálgæslu leiddi hana í djáknann
Að sögn Guðbjargar voru skjólstæðingarnir skemmtilegir og fjölbreyttur hópur - fólk á öllum aldri með ólíka hjartasjúkdóma. „Fljótlega kom í ljós hvar hjarta mitt sló hraðast. Ég hafði langmestan áhuga á þeim sem voru með hjartabilun og í flestum tilfellum var það veikasta fólkið á deildinni.“ Á þessum tíma var umræðan um dauðann í tengslum við veikindi mun viðkvæmari en nú. Þannig voru einstaklingar með alvarlega hjartabilun ekki að fá sömu nálgun í sínum veikindum og til dæmis var þekkt innan líknargeirans með krabbameinssjúklinga segir hún. Áhugi Guðbjargar á sálgæslu varð til þess að hún hóf nám í djáknafræðum við HÍ. Hún segir þá ákvörðun hafa verið mikið gæfuspor en í kjölfarið kynntist hún krabbameins- og líknargeiranum þegar hún var í rannsóknarvinnu fyrir Sigríði Gunnarsdóttur, núverandi framkvæmdarstjóra hjúkrunar á Landspítala, og Valgerði Sigurðardóttur, yfirlækni Líknardeildarinnar í Kópavogi og Heimahlynningunni (sem heitir nú HERA). „Það má með sanni segja að þá hafi opnast nýr heimur fyrir mér í hjúkrun,“ segir hún, en samhliða rannsóknarvinnunni vann hún í Heimahlynningunni og á aukavöktum á Líknardeildinni. Að lokinni rannsóknarvinnunni fór hún alveg yfir í Heimahlynninguna.Guðbjörgu bauðst síðan draumastarfið árið 2011 þegar henni var boðið að fara yfir á Göngudeild hjartabilunar. „Ég nýt þess innilega að vinna þar með yndislegu samstarfsfólki sem sýnir faglegan metnað og umhyggju fyrir starfsemi okkar.“
„Í Heimahlynningunni fékk ég að kynnast þvílíkri fagmennsku í líknar- og einkennameðferð. Þar var einvalalið hjúkrunarfræðinga og lækna úr grasrótinni sem hafði áhuga á að breiða út boðskap slíkrar meðferðar fyrir fleiri hópa en eingöngu þá sem höfðu greinst með krabbamein og fannst þeim spennandi að veita slíka þjónustu fyrir fólk með alvarlega hjartabilun. Ég fékk því einstakt tækifæri og var mér sýnt mikið traust að vera með í þeirri vinnu. Í flestum tilfellum komu þessir einstaklingar inn í þjónustu Heimahlynningar í gegnum Göngudeild hjartabilunar og öfundaði ég mjög Önnu Guðrúnu Gunnarsdóttur hjúkrunarfræðing af starfi sínu á þeirri deild, enda ástríðan fyrir hjartabiluðum alltaf til staðar hjá mér.“ Guðbjörgu bauðst síðan draumastarfið árið 2011 þegar henni var boðið að fara yfir á Göngudeild hjartabilunar. „Ég nýt þess innilega að vinna þar með yndislegu samstarfsfólki sem sýnir faglegan metnað og umhyggju fyrir starfsemi okkar.“ Á Göngudeild hjartabilunar er boðið upp á sérhæfða þjónustu fyrir einstaklinga sem hafa greinst með alvarlega hjartabilun á öllum aldri í samvinnu við margar fagstéttir, bæði innan og utan Landspítala. Starfið er því mjög fjölbreytt segir Guðbjörg. Þá er auk þess mikil samvinna við heimahjúkrun sem sinnir hjartabiluðum heima í þjónustu sem kölluð er ,,Hjartabilunarþjónustan“. Að sögn Guðbjargar felur sú þjónusta í sér að þeim eldri borgurum sem eiga erfitt með að komast á göngudeildina er gert kleift að vera heima og fá þar meðferð. „Með þessari þjónustu drögum við mjög úr innlögnum á spítalann og viljum við meina að við bætum lífsgæði þessa hóps.“