Veitir doktorsnemum brautargengi
Jóhanna Bernharðsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ
Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur (RIM) var stofnaður 29. júní 2007 að frumkvæði Ingibjargar R. Magnúsdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og formanni námsbrautarstjórnar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði og eru styrkir veittir til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi vegna rannsóknarverkefna sem falla að markmiðum sjóðsins. Ingibjörg var, eins og kunnugt er, einn helsti hvatamaður að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði árið 1973 og sannkallaður brautryðjandi í menntunarmálum hjúkrunarfræðinga hérlendis. Eins og flestir vita hefur Ingibjörg reynst íslenskri hjúkrunar- og ljósmóðurstétt einstakur velgjörðarmaður en hin síðari ár hefur hún einbeitt sér að eflingu RIM með peningagjöfum og margvíslegum stuðningi sem vert er að þakka.
Frá stofnun sjóðsins hefur verið úthlutað 10 sinnum, samtals 24 styrkjum til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Heildarupphæð styrkjanna er orðin 8.300.000 kr. Sextán af 20 styrkhöfum hafa nú þegar útskrifast en um þessar mundir stunda 15 nemendur doktorsnám við Hjúkrunarfræðideild H.Í. Rannsóknarverkefni styrkhafa hafa spannað vítt svið og lagt umtalsvert af mörkum til fjölbreyttrar þjónustu og rannsókna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra.
Fjölbreytt verkefni
Doktorsverkefnin hafa verið unnin á vettvangi flestra sérsviða hjúkrunar- og ljósmóðurfræði og beinst m.a. að fólki með langvinna verki, lífslokameðferð, heimafæðingum sem valkosti, unglingum með athyglisbrest og ofvirkni, endurhæfingu, gaumstoli, upplýsingatækni og heilsufari þeirra sem nýlega hafa flust á hjúkrunarheimili. Mörg verkefnanna hafa falið í sér íhlutanir, s.s. framsetningu meðferðarsamtala fyrir fjölskyldur mismunandi skjólstæðingahópa, til dæmis fyrir fjölskyldur barna og unglinga með astma, eftirgæslu eftir legu á gjörgæsludeild, geðvernd sem beinist að ungu fólki, skipulagningu meðferðarúrræða fyrir þolendur kynferðisofbeldis, fræðslu fyrir skurðsjúklinga og svo mætti lengi telja.Það er óhætt að segja að allir styrkþegar RIM eru í dag mjög virkir í rannsóknum og framþróun eigin sérgreina. Flestir, ef ekki allir, taka þátt í að veita nemendum leiðsögn, m.a. í meistara- og doktorsnámi. Framlag þeirra er ómetnanlegt fyrir íslenska hjúkrunar- og ljósmóðurstétt, þeirra sem svo bera kyndilinn áfram. Þannig þróast fagið, ný þekking skapast sem síðan nýtist í þjónustu við skjólstæðinga.
Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur starfar eftir staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn. Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar, Stefán Bragi Bjarnason, lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins.
Að leggja sjóðnum lið
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður eru hvattar til að leggja sjóðnum lið svo hann megi þjóna sem best tilgangi sínum. Gerum orð Ingibjargar að okkar og höfum hugfast að margt smátt gerir eitt stórt. Veitum doktorsnemum og doktorsverkefnum í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum brautargengi með stuðningi okkar.Hægt er að styrkja Rannsóknasjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á slóðinni: http://sjodir.hi.is/rannsoknasjodur_ingibjargar_r_magnusdottur.
Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199.