Hjukrun.is-print-version

„Við megum vera stolt af okkur sem stétt“

3. tbl. 2020
Viðtal við Ingibjörgu Rós Kjartansdóttur
- Viðtal við Ingibjörgu Rós Kjartansdóttur

„Álagið er búið að vera gríðarlega mikið síðustu vikur. Ég byrjaði að starfa í Orkuhúsinu 1. september og fljótlega eftir það byrjaði þriðji faraldurinn,“ segir Ingibjörg Rós Kjartansdóttir sem fór úr háloftunum í covid-gallann í sýnatökur í Orkuhúsinu. „Ég tel mig vera vana að vinna undir miklu álagi og við krefjandi aðstæður. Þessi vinna er frábrugðin þar sem við erum að glíma við faraldur. Ég hefði aldrei ímyndað mér að við myndum ganga í gegnum svona faraldur – þessar aðstæður í heiminum eru ótrúlegar og eiga eftir að hafa miklar afleiðingar í för með sér.“ Við erum að glíma við veiru sem við þekkjum ekki vel og við erum að reyna að gera hlutina eins vel og við getum, segir Ingibjörg. „Bara það að vinna í „covid-19-galla“ erglíma. Við erum klædd í heilslopp, með hárnet, grímu, skjöld og tvö lög af hönskum. að vinna í þessum galla í 2-4 klukkustundir samfellt er meiri háttar streð og eftir langan vinnudag er maður gjörsamlega búinn á því andlega og líkamlega,“ segir Ingibjörg aðspurð um álagið í Orkuhúsinu þar sem sýnatökur fara fram.

Yfirumsjón með sýnatökum

Ingibjörg starfar sem hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er með starfstöð á Suðurlandsbraut 34 í Reykjavík, eða Orkuhúsinu svokallaða, þar sem covid-19-sýnatökur fara fram. Hún hefur yfirumsjón og eftirlit með sýnatökum, auk þess að svara netspjalli á heilsuveru.is. Fimm hjúkrunarfræðingar eru starfandi í Orkuhúsinu, auk þess starfa 20-30 sérþjálfaðir starfsmenn á hverri vakt frá Öryggismiðstöðinni.

Allt að 4000 sýni á dag

„Á Suðurlandsbrautinni tökum við allt að 4000 sýni á hverjum degi. Við tökum sýni úr fólki sem er að losna úr sóttkví, einkennasýnatöku, seinni sýnatöku á landamærum og slembiskimun. Við höfum verið að taka sýni úr fólki á öllum aldri, eða alveg frá eins mánaðar börnum og upp í 92 ára gamalt fólk. Þessi aldursflokkar eru miskrefjandi og við erum sífellt að breyta starfseminni til þess að bæta okkur þar sem við erum ávallt að reyna að veita sem besta þjónustu. Mikilvægt er fyrir mig og okkur að ferlið sé skilvirkt og gangi hratt fyrir sig. Við viljum veita góða þjónustu og það skiptir mig miklu máli að fólk sé ánægt,“ segir Ingibjörg.

„Það er auðvitað gríðarlega mikið álag á okkur og mér finnst allir standa sig 100% og gott betur en það. Auðvitað koma dagar þar sem fólk er algjörlega bugað, því er mikilvægt að tala saman og vera meðvitaður um samstarfsmenn sína. Það koma dagar þar sem ég sest ekki niður – það er bara þannig.

Gríðarlegt álag á öllum

Ingibjörg er næst spurð um álagið á starfsfólkinu í Orkuhúsinu vegna covid-19. „Það er auðvitað gríðarlega mikið álag á okkur og mér finnst allir standa sig 100% og gott betur en það. Auðvitað koma dagar þar sem fólk er algjörlega bugað, því er mikilvægt að tala saman og vera meðvitaður um samstarfsmenn sína. Það koma dagar þar sem ég sest ekki niður – það er bara þannig. Ég vil vinna verkefnið vel og má segja að ég sé stundum of samviskusöm. Það er gott samstarf á milli starfsmannanna og ég tel mikilvægt að við hrósum hvert öðru, sérstaklega á erfiðum dögum. Bara það að fá klapp á bakið og að einhver segi manniað maður sé að vinna vel skiptir gríðarlega miklu máli.“

Úr flugfreyjunni í covid-gallann

Auk þess að vera hjúkrunarfræðingur er Ingibjörg líka flugfreyja. „Já, það má segja það að ég hafi farið beint úr fluginu í þetta verkefni, fyrir mig var ekkert mál að skipta yfir. Ég hef verið að fljúga af og til síðan 2007 en útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur 2009 og hef því verið að flakka á milli starfa síðan þá. Ég lít þó á mig fyrst og fremst sem hjúkrunarfræðing og ég er mjög stolt af minni stétt enda mikill hjúkrunarfræðingur í eðli mínu,“ segir Ingibjörg.

Viðtal: Magnús Hlynur Hreiðarsson


Pistlar og viðtöl

Sýkingar og smit

Öryggi

Til bakagreinasafn

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála