Greinar
Ritstjóraspjall
Frá 28. febrúar hafa tæplega 5000 manns smitast af covid-19 hér á landi og 17 látist þegar þetta er ritað í byrjun nóvember.
Íslensk þýðing WHODAS 2.0 og próffræðilegir eiginleikar hennar
Hafdís Hrönn Pétursdóttir, Ragnheiður Harpa Arnardóttir og Guðrún Pálmadóttir
Í hugmyndafræði alþjóðlega flokkunarkerfisins um færni, fötlun og heilsu (ICF) er áhersla lögð á færni fólks við þær aðstæður sem það býr. WHODAS 2.0 spurningalistinn, WHO Disability Assessment Schedule 2.0, var saminn til að mæla færni og fötlun í takt við ICF, óháð mál- og menningarsvæðum eða þeim heilsufarsvanda sem að baki býr. Markmið rannsóknarinnar voru að þýða WHODAS 2.0 og staðfesta próffræðilega eiginleika íslensku þýðingarinnar.Hegðunarvandamál á hjúkrunarheimilum og tengsl við heilsufar, virkni og fjötranotkun
Sólveig Hrönn Gunnarsdóttir og Ingibjörg Hjaltadóttir
Á Íslandi fjölgar í hópi háaldraðra eins og annars staðar í heiminum. Það kallar á aukna og bætta þjónustu við þennan aldurshóp. Einstaklingum með heilabilunarsjúkdóma fer því einnig fjölgandi en sjúkdómunum fylgja ýmis taugasálfræðieinkenni. Hegðunarvandi sem birtist hjá allt að 90% einstaklinga með heilabilun veldur hinum aldraða og aðstandendum hans mikilli streitu og dregur úr vellíðan og lífsgæðum.Kvíði hjá öldruðum. Greining og meðferð
Kvíði lýsir sér þannig að fólk hefur miklar áhyggjur sem erfitt er að stjórna. Þessar áhyggjur fara að hafa áhrif á daglegt líf fólksins.
Þunglyndi meðal aldraðra: Einkenni, orsök, mat og meðferð
Þunglyndi er einn af algengustu sjúkdómum í heiminum, en um 15% aldraðra eru metnir með þunglyndi og talið er að á árabilinu 2015 til 2050 muni hlutfall þeirra sem eru með þunglyndi hækka í 22% (World Health Organization, 2017).
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands á tímum covid-19
Mikið hefur mætt á heilbrigðiskerfinu og þar með hjúkrunarfræðingum í yfirstandandi covid-19-heimsfaraldri.
Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri
Við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri (HA) er boðið upp á 120 ECTS-eininga meistaranám og viðbótarnám (diplómanám) á meistarastigi.
„Það er sko miklu erfiðara að komast þaðan aftur en að lenda þar“
Hjúkrun tekur toll af hverri manneskju líkt og önnur störf sem snúa að umönnun, aðstoð og kennslu. Að hafa valið þann vettvang að ævistarfi var dýru verði keypt hjá Ingu Dagný Eydal hjúkrunarfræðingi en hún lagði allan sinn metnað í starfið þar til að því kom hún þoldi ekki meira.
Þankastrik: Heilbrigðismál flóttamanna
Ég vil byrja á að þakka Soffíu Kristjánsdóttur, fyrrverandi bekkjarsystur minni frá Háskólanum á Akureyri árið 2008, fyrir að skora á mig að skrifa mín þankastrik.
Tæpitungulaust: Ekki slaka á kröfunum
Í meira en áratug hefur almenningur á Íslandi horft upp á baráttu heilbrigðisstétta fyrir bættum kjörum og viðunandi vinnuaðstæðum.