14.
mars 2014
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri bráðasviðs á Landspítala, hlaut stjórnunarverðlaun Stjórnvísis 12. mars sl. Stjórnunarverðlaunin eru veitt árlega stjórnendum sem þykja hafa skarað framúr á sínu sviði. Guðlaug Rakel var valin ásamt tveim öðrum úr hópi um fimmtíu stjórnenda sem tilnefndir voru. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Veisluturninum í Kópavogi.
Guðlaug Rakel hefur langa og farsæla reynslu sem stjórnandi á Borgarspítala og Landspítala og hefur einnig verið virk í starfi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Henni er óskað innilega til hamingju með verðlaunin.