Hjukrun.is-print-version

Tryggjum öfluga og örugga heilbrigðisþjónustu

RSSfréttir
22. september 2014

Eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar að hausti er að leggja fram fjárlagafrumvarp fyrir næsta starfsár. Það frumvarp vekur alltaf mikla athygli enda segir það til um hvernig ríkisstjórnin ætlar að útdeila fjármagni þjóðarinnar.
Undanfarið hefur farið fram umræða um að stofnanir ríkisins séu að keyra fram úr fjárlagaheimildum og hafa heilbrigðisstofnanir verið nefndar í þeirri umræðu þó einkum Landsspítalinn.

Starfsemi sjúkrahúsa er þess eðlis að erfitt er að áætla nákvæmlega um kostnað þeirra. Hægt er að taka meðaltöl yfir fjölda sjúklinga og legutíma þeirra undanfarinna ára en slíkar forsendur geta orðið rangar á augabragði. Frávik frá áætlunum sjúkrahúsa geta kostað gríðarlega fjármuni. Sem dæmi má nefna auknar innlagnir á vökudeild Landspítalans. Í áætlunum er gert ráð fyrir 12- 16 börnum en innlögð börn hafa verið yfir 20 meirihluta ársins. Það kostar sjúkrahúsið um 60 milljónir aukalega samkvæmt fréttaflutningi um málið. Ég held að við séum öll sammála að slíkan kostnað teljum við ekki eftir okkur að greiða.

Heilbrigðisstofnanir hafa lögbundið hlutverk sem þeim ber að sinna. Þær taka á móti þeim sem þangað leita og gera það sem nauðsyn krefur til að koma þeim á fætur og þannig aftur út í þjóðfélagið eða bæta líðan þeirra sem ekki munu ná bata. Þær hafa ekki möguleika á að vísa skjólstæðingum sínum annað og þá sérstaklega ekki Landspítalinn. Hann er oft á tíðum eina heilbrigðisstofnunin sem getur leyst ákveðin vandamál skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins.

Ég veit af eigin raun að ekki er verið að fara illa með fé almennings innan ríkisrekinna heilbrigðisstofnana. Dregið hefur verið saman í rekstri þeirra svo um munar og getur hvaða heilbrigðisstarfsmaður sem er verið til vitnis um það. Heilbrigðisstarfsmenn og stjórnendur hafa unnið þrekvirki við að halda uppi gæðum þjónustunnar þrátt fyrir minna fjármagn.

Ég hvet ríkisstjórnina til að leggja áherslu á að efla heilbrigðiskerfið líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum þegar fjárlög næsta árs verða samin. Gera þarf raunhæf fjárlög sem gera stofnunum kleyft að standast þann ramma sem um þær eru settar. Það vilja allir Íslendingar hafa aðgang að góðri, öflugri og öruggri heilbrigðisþjónustu þegar þeir þurfa á henni að halda og ég tel það skyldu ríkisstjórnarinnar að tryggja að slík þjónusta sé í boði.

Ólafur G. Skúlason
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála