19.
nóvember 2014
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboði til formanns félagsins. Samkvæmt lögum félagsins skal formaður kjörinn til tveggja ára í senn með allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna það ár sem ber upp á oddatölu. Einungis félagsmenn með fulla aðild og fagaðild eru kjörgengir í embætti formanns.
Framboð berist til kjörnefndar á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið kjornefnd@hjukrun.is.
Framboðsfrestur er til 31. janúar 2015.
F.h. kjörnefndar
Ásta Möller, formaður