22.
janúar 2015
Á fundi orlofsnefndar var ákveðið að hækka niðurgreiðslu á hótelmiðum en þeir hafa verið mjög vinsælir hjá félagsmönnum. Niðurgreiðslan var 2.500 kr. og fer í 3.000 kr. pr. miða. Einnig var ákveðið að bæta við framboð á hótelmiðum. Nýjasta viðbótin er hjá B&B gistiheimilinu í Keflavík. Þeir bjóða uppá akstur fram og til baka á flugvöllinn.