Hjukrun.is-print-version

Ólafur G. Skúlason sjálfkjörinn

RSSfréttir
4. febrúar 2015


 

Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er sjálfkjörinn til næstu tveggja ára.

Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er kjörinn á tveggja ára fresti á því ári sem oddatala er.

Kjörnefnd félagsins auglýsti eftir framboði til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í lok nóvember s.l. og var framboðsfrestur til 31. janúar 2015.

Eitt framboð barst til kjörnefndar frá Ólafi G. Skúlasyni núverandi formanni félagsins og er hann því sjálfkjörinn sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kjörtímabilið 2015-2017.

F.h. kjörnefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 
Ásta Möller formaður 

 

 

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála