Miðað við yfirlýsingu háttvirts forsætisráðherra í sjónvarpsfréttum Stöðvar tvö í kvöld er ljóst að ekki verður samið við hjúkrunarfræðinga í bráð. Hjúkrunarfræðingar vonast til að samið verði áður en til verkfalls komi en svo virðist sem ríkisstjórnin hafi ákveðið að ekki verði samið við opinbera starfsmenn fyrr en samið hafi verið við almenna markaðinn. Telur Fíh að þar sé vegið að samningsrétti opinberra starfsmanna.
Það er vægast sagt sérkennilegt í kjarabaráttu að annar samningsaðilinn búi yfir því afli að geta sett lög á hinn samningsaðilann sem gerir sjálfsagt og eðlilegt verkfallsvopn að engu. Fíh telur að komi til lagasetningu á verkfall hjúkrunarfræðinga muni það einungis valda úlfúð og verði ekki til þess fallandi að leysa málin á farsælan hátt fyrir báða aðila.
Það er von Fíh að á samningafundi á morgun komi raunhæft tilboð frá viðsemjendum okkar sem miðar að því að laun hjúkrunarfræðinga verði sambærileg og laun annarra háskólamenntaðra og taki ákveðið skref í að jafna launamun kynjanna hjá hinu opinbera.