27.
maí 2015
Hátt í 500 manns mættu á upplýsingafund um boðað verkfall í gær 26. maí, og var mikill samhugur í fólki. Meðal umræðuefna voru laun hjúkrunarfræðinga og ýmsir þættir sem snúa að verkfallsaðgerðunum, svo sem mætingu í verkfalli, greiðslur úr verkfallssjóði og verkfallsvörslu. Nánari upplýsingar um þessa þætti er að finna á síðunni Spurt og svarað um verkfall, en síðan er í sífelldri endurskoðun og bætt er við hana eftir því sem við á.
Á fundinum kom fram að félagið gerir kröfu um að menntun og ábyrgð hjúkrunarfræðinga verði metin til launa, en laun hjúkrunarfræðinga eru 15-25% lægri en laun karllægari stétta sem starfa á vegum ríkisins og hafa jafnlanga eða styttri háskólagöngu að baki.