28.
maí 2015
Eftirfarandi yfirlýsing barst Fíh í gær:
Reykjavík, 27. maí 2015
Lyfjafræðingar á Landspítala lýsa yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga og yfirstandandi aðgerðir sem þeir hafa þurft að grípa til. Við lýsum yfir áhyggjum af þeirri alvarlega stöðu sem upp er komin í íslensku heilbrigðiskerfi.
Við hvetjum stjórnvöld til að horfa til framtíðar og bregðast við vandanum
til tryggja heilbrigðisþjónustu Íslendinga.
Virðingarfyllst,
Lyfjafræðingar á Landspítala