Aðstandendur tónleikanna Höfundur óþekktur (KÍTÓN (Konur í tónlist) og 100 ára kosningaréttur-afmælisnefnd) vilja af gefnu tilefni bjóða hjúkrunarfræðingum að koma og fagna kvenréttindadeginum á sérstökum hátíðartónleikum í Hörpu "Höfundur óþekktur", föstudagskvöldið 19.júní kl.20.30. * Allar upplýsingar hér að neðan.
Það eru 500 miðar í boði og hægt er að nálgast miðana í miðasölu Hörpu frá og með núna. hjúkrunarfræðingar er beðnir um að koma með auðkenniskort sitt og sýna í miðasölunni. Hámark 2 miðar á mann. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Félagar eru hvattir til að mæta saman og eiga góða kvöldstund.
Hérna er slóðin á miðasöluna:
http://harpa.is/dagskra/hofundur-othekktur
Hérna er slóðin á FB viðburðinn:
https://www.facebook.com/events/767536713367641/
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur hjúkrunarfræðinga til að nýta sér gjöfina og þakkar aðstandendum tónleikana fyrir stuðninginn.