Í tilefni þess að 35 ár eru
liðin frá sögulegu kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands
verður efnt til hátíðardagskrár á Arnarhóli sunnudaginn 28. júní kl.
19.40-21.10. Að dagskránni standa Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum og Háskóli Íslands í samvinnu við Alþingi, ríkisstjórn
Íslands, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skógræktarfélag
Íslands, Samtök atvinnulífsins og tugi stofnana og félagasamtaka, sem beita sér
fyrir málefnum, sem Vigdísi eru hugleikin.
Fjöldi listamanna kemur fram,
en dagskránni er ætlað að höfða til alls almennings, ekki síst ungs fólks.
Félagar úr blásarasveitinni
Wonderbrass leika, Edda Þórarinsdóttir og Felix Bergsson flytja brot úr
sápuóperunni Leitin að Jörundi í tónlistarstjórn Karls Olgeirssonar og
Hjörleifur Hjartarson kynnir brot úr Sögu þjóðar.
Þá mun færeyska söngkonan
Eivør Pálsdóttir og dönsku og sænsku óperusönvararnir Palle Knudsen og Ylva
Kihlberg flytja kveðjur frá frændþjóðum með söng sínum. Hljómsveitirnar
Baggalútur og Samaris leika og syngja og ungt tónskáld, Már Gunnarsson, flytur
frumsamið lag til Vigdísar. Sviðshöfundar og leikarar frá Listaháskóla Íslands
og Stúdentaleikhúsinu varpa með sínum hætti ljósi á viðtekin viðhorf í
þjóðfélaginu og hvernig framboð Vigdísar og forsetakjör breytti hugsunarhætti
fólks. Rithöfundarnir Kristín Helga Gunnarsdóttir og Jón Kalman Stefánsson
flytja enn fremur tveggja manna tal. Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis og
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, flytja ávörp.
Dagskránni verður sjónvarpað
beint á RÚV. Listrænn stjórnandi er Kolbrún Halldórsdóttir og stjórnandi
útsendingar sjónvarps Egill Eðvarðsson.
Allir eru hvattir til að
fjölmenna á Arnarhól, gleðjast saman og heiðra Vigdísi á merkum tímamótum.
Auk ofangreindra aðstandenda
eru helstu styrktaraðilar viðburðarins Landsbankinn, Eimskip, VR, Icelandair
Group, Norræna húsið, Morgunblaðið, Þórshöfn í Færeyjum, Framkvæmdanefnd um 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna og Listaháskóli Íslands.
Eftirfarandi félagasamtök
standa einnig að viðburðinum:
Almannaheill - samtök þriðja
geirans
Alþjóðlegur jafnréttisskóli
Háskóla Sameinuðu þjóðanna
Arkitektafélag Íslands
Árnesingakórinn í Reykjavík
Bandalag háskólamanna
Bandalag íslenskra listamanna
Bandalag íslenskra skáta
Barnaheill - Save the Children
á Íslandi
Blindrafélagið
Félag háskólakvenna
Félag íslenskra bókaútgefenda
Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Félag kvenna í atvinnulífinu
Félag leiðsögumanna
Gígjan - Landsamband
kvennakóra
Háskólakórinn
Heklurnar
Íslandsstofa
Íslenski dansflokkurinn
Jórukórinn á Selfossi
Kammerkór Suðurlands
Kennarasamband Íslands
Krabbameinsfélagið
Kvenfélagasamband Íslands
Kvenréttindafélag Íslands
Kvennakór Garðabæjar
Kvennakór Kópavogs
Kvennakór Suðurnesja
Kyrjukórinn Þorlákshöfn
Landgræðsla ríkisins
Landsnefnd UN Women á Íslandi
Landssamband blandaðra kóra
Landssamband karlakóra
Landssamtök íslenskra stúdenta
Landvernd
Lions-hreyfingin á Íslandi
RIKK – Rannsóknastofnun í
jafnréttisfræðum
Rithöfundasamband Íslands
Rotary á Íslandi
Rótarýklúbburinn
Reykjavík-Miðborg
Samkór Kópavogs
Samtök ferðaþjónustunnar
Samtök móðurmálskennara
Samtök kvenna af erlendum
uppruna
Samtök tungumálakennara á
Íslandi – STÍL
Skátakórinn
Sólheimar – sjálfbært samfélag
Stúdentaráð Háskóla Íslands
Söngfjelagið Ásta
Þórarinsdóttir
Söngsveitin Fílharmónía
Tónverkamiðstöðin
Yrkja
Verkfræðingafélag Íslands
Zontasamband Íslands
26.
júní 2015