Hjukrun.is-print-version

Hjúkrunarfræðingar hafna kjarasamningi

RSSfréttir
15. júlí 2015

Í nýafstaðinni atkvæðagreiðslu höfnuðu félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) kjarasamningi félagsins við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 23. júní síðastliðinn. Samningurinn var felldur með 1677 atkvæðum á móti 219 eða með 88,4% gegn 11,6%. Alls voru 2236 hjúkrunarfræðingar á kjörskrá. Þar af greiddu 1896 atkvæði, eða 84,8%.

Í kjölfar lagasetningar Alþingis, sem batt enda á verkfallsaðgerðir hjúkrunarfræðinga, var það sameiginleg ákvörðun samninganefndar Fíh, trúnaðarmannaráðs og framkvæmdaráðs stjórnar félagsins að rétt væri að gefa  hjúkrunarfræðingum tækifæri til að kjósa um tilboð ríkisins sem þá lá fyrir. Enda taldi samninganefnd Fíh að gerðardómi, sem Alþingi fól að ákvarða laun hjúkrunarfræðina, væru settar afar þröngar skorður.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar undirstrikar stuðning hjúkrunarfræðinga við áherslur samninganefndar félagsins um að stjórnvöld verði að bregðast við sanngjörnum kröfum þeirra um að grunnlaun hjúkrunarfræðinga verði sambærileg við aðrar háskólamenntaðar stéttir og markvisst verði dregið úr kynbundnum launamun.

Fréttir af uppsögnum hjúkrunarfræðinga á síðustu vikum endurspegla afstöðu þeirra til tilboðs ríkisins en ómögulegt er að reka öflugt og öruggt heilbrigðiskerfi án þátttöku vel menntaðra hjúkrunarfræðinga.

Stjórn Fíh lítur svo á að samningar félagsins við ríkið séu nú lausir. Félagið mun endurmeta stöðuna í ljósi niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar og fela lögmanni sínum að meta réttarstöðu félagsins gagnvart ríkinu.

Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála