7.
ágúst 2015
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að ráða ritstjóra Tímarits hjúkrunarfræðinga í fullt starf.
Tímarit hjúkrunarfræðinga er í senn fræðitímarit, fagtímarit og félagsblað með viðtölum og greinum um hjúkrun, störf hjúkrunarfræðinga, heilbrigðismál o.fl.
Frá júní 2015 er tímaritið eingöngu gefið út rafrænt.
Helstu verkefni:
- Ritstjórn
- Efnisöflun
- Greinaskrif
- Umsjón með ritrýndum fræðigreinum
- Samskipti við ritnefnd, greinahöfunda, ritrýna, prófarkalesara og umbrotsmann
- Umfjöllun um fundi, þing og ráðstefnur á vegum félagsins
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsnám æskilegt
- Hjúkrunarfræðimenntun er kostur
- Reynsla af útgáfu tímarits og ritstjórn
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði sem og færni í textaskrifum
- Góð enskukunnátta og kunnátta í einu Norðurlandamáli
- Góð tölvukunnátta
- Þekking og reynsla af rafrænu umhverfi og notkun samfélagsmiðla
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skapandi hugsun
Upplýsingar gefur Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga: olafur@hjukrun.is
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2015. Umsóknum skal skila rafrænt á olafur@hjukrun.is