Hjukrun.is-print-version

Verkefna- og rannsóknarstyrkir SUMS

RSSfréttir
1. febrúar 2016

Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir þrjá styrki, hver að verðgildi allt að 200 þúsund krónum.
Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS.
Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig auk þess til að kynna verkefnin / rannsóknirnar á ráðstefnu eða aðalfundi SUMS.

Ekki verður tekið við umsókn um styrk til ráðstefnuferða nema ef viðkomandi fer til að kynna verkefni / rannsókn í formi erindis eða veggspjalds.

Í umsókn þarf að koma fram:
  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang
  • Sími
  • Staða
  • Vinnustaður
  • Menntunargráða
  • Heiti verkefnis
  • Stutt lýsing verkefnis / rannsóknar (markmið, aðferðir, gildi fyrir sárameðferð á Íslandi)
  • Samstarfsaðilar
  • Áætluð lok verkefnis / rannsóknar
  • Kostnaðaráætlun

Fylgiskjöl: Leyfi frá persónuvernd og siðanefnd þarf að fylgja þar sem það á við.

Umsóknarfrestur er til 2. mars 2016

Styrkþegar verða kynntir á aðalfundi SUMS 16. mars 2016

Umsóknir skal senda sem fylgiskjal (pdf skjal) á sums2004@gmail.com
Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á sums2004@gmail.com
Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála