19.
september 2016
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild vegna vorannar 2017. Umsóknarfresti lýkur 15. október n.k.
Opið er fyrir umsóknir í meistaranám í hjúkrunarfræði og meistaranám í ljósmóðurfræði auk þess sem vakin er athygli á 32ja eininga viðbótardiplómanámi í hjúkrunarstjórnun, með áherslu á rekstur og mannauðsstjórnun, sem hefst í janúar 2017.
Bæklingur með nánari upplýsingum um framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild
Kennsluskrá framhaldsnáms við Hjúkrunarfræðideild