13.
október 2016
Vinnueftirlitið hefur gefið út í samvinnu við velferðarráðuneytið nýtt fræðslu- og leiðbeiningarrit í samvinnu við velferðarráðuneytið. Ritinu er ætlað að leiðbeina og styðja stjórnendur og aðra á vinnustöðum í að fyrirbyggja og bregðast við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og öðru ofbeldi á vinnustöðum.
Bestum árangri er náð með skipulögðum forvörnum á vinnustöðum, en þar skiptir mestu að efla félagslegt vinnuumhverfi með góðri stjórnun og öflugu vinnuverndarstarfi.
Ritinu má hlaða niður hér:
Sættum okkur ekki við einelti, áreitni, ofbeldi
Í kjölfarið mun Vinnueftirlitið setja upp vefsíðu með leiðbeiningum og fræðsluefni.