7.
nóvember 2016
Verkefninu „Forgangsröðun verkefna og hjúkrun sem er sleppt: Alþjóðlegt og fjölþætt vandamál“ (SUCCESSFUL COST PROPOSAL: RANCARE COST ACTION) var hleypt af stokkunum í Brussel þann 20. september sl. en það er fjármagnað með svokölluðum COST styrk Evrópusambandsins (European Cooperation in Science and Technology).
Rannsóknir benda til þess að forgangsröðun í hjúkrun sé viðtekinn vandi og hafi neikvæðar afleiðingar fyrir sjúklinga, hjúkrunarfræðinga og stofnanir. Markmið verkefnisins er að auðvelda umræðu um forgangsröðun í hjúkrun með fjölþjóðlegri nálgun og samanburð milli landa á þjónustunni og þróun hjúkrunar. Þetta verður gert með því að stuðla að samstarfi og nýtingu á sérfræðiþekkingu í Evrópu og alþjóðlega, og með aðkomu ólíkra aðila svo sem úr hjúkrun, heilbrigðisþjónustu almennt, siðfræði og félagsvísindum.
Verkefnið er eitt af 26 sem valin voru úr hópi 260 umsækjenda frá öllum löndum Evrópu. Stjórnandi verkefnisins er dr. Evridiki Papastavrou, dósent við Hjúkrunarfræðideild Cyprus University of Technology en skólinn er handhafi styrksins.
Þátttakendur í verkefninu koma frá 28 löndum (Evrópu og alþjóðlega) og eru frá ýmsum fræðasviðum eins og hjúkrunarfræði, sálfræði, heimspeki, siðfræði, heilbrigðishagfræði og heilbrigðisstjórnun og eru þar á meðal fræðimenn, fagmenn, stefnumarkandi aðilar, kennarar og sjúklingar.
Vinna þátttakenda í verkefninu mun fara fram í fjórum vinnuhópum og tveimur nefndum sem hafa umsjón með hinum ýmsu verkþáttum á fjögurra ára tímabili verkefnisins. Hver vinnuhópur mun einblína á mismunandi þætti:
Vinnuhópur 1: Hugtakagreiningu, skipulagsmál og aðferðafræði
Vinnuhópur 2: Gagnreyndar íhlutanir og aðferðir
Vinnuhópur 3: Siðferðisleg álitamál við forgangsröðun í hjúkrun
Vinnuhópur 4: Menntunarmál og þjálfun
Á meðal væntanlegra niðurstaðna má nefna aukna þekkingu á því hvernig hjúkrun er forgangsraðað og áhrifaþáttum þess og mörkun stefnu sem hefur öryggi sjúklinga að leiðarljósi.
Ísland er þátttakandi í verkefninu í gegnum Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala. Aðalfulltrúar Íslands eru dr. Helga Bragadóttir, dósent og forstöðumaður fræðasviðs í hjúkrunarstjórnun, og dr. Ingibjörg Hjaltadóttir, dósent og sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, báðar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala. Varamenn þeirra eru Elfa Þöll Grétarsdóttir, hjúkrunarfræðingur MSc, aðjúnkt, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, Háskóla Íslands og Landspítala og Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, dósent Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar