Hjukrun.is-print-version

Rjúfum hefðirnar –förum nýjar leiðir

RSSfréttir
21. nóvember 2016

Fíh vinnur með Jafnréttisstofu að verkefninu Rjúfum hefðirnar –förum nýjar leiðir. Verkefnið felst í því að vinna gegn neikvæðum staðamyndum um hlutverk kvenna og karla og draga úr kynbundnu náms- og starfsvali.

Fíh telur mikilvægt að jafna kynhlutfallið í hjúkrun og hefur einn liður í því verið átaksverkefnið Karlmenn hjúkra sem hófst á Facebook síðasta vor.

Til að fjölga körlum í hjúkrunarfræðinámi mun Fíh m.a. vinna með hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri sem hefur sett sér það markmið að auka hlut karlmanna í hjúkrunarfræðinámi í 25%. Samstarfið við HA er hluti af samstarfi félagsins og Jafnréttisstofu.



Til baka

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála