31.
janúar 2017
Orlofssjóður býður nú upp á niðurgreiðslu fjögurra flugmiða árlega frá Flugfélaginu Erni. Niðurgreiðslan fer fram með millifærslu inn á reikning félagsmanns eftir að hann hefur sent kvittun fyrir flugmiða með nafni og kennitölu á hjukrun@hjukrun.is.
Að auki geta félagsmenn nú keypt fjögur gjafabréf frá Icelandair og Flugfélagi Íslands í stað tveggja áður. Punktafrádráttur vegna kaupa á gjafabréfum flugfélaganna hefur einnig verið lækkaður.
Nánari upplýsingar um gjafabréf og niðurgreiðslur orlofssjóðs má lesa hér.